Foreldrasáttmáli
Foreldrasáttmálinn hefur verið lagður fyrir í fjölmörgum skólum um allt land og í þeim samfélögum þar sem góð samstaða hefur náðst um samninginn er fólk sammála um jákvæð áhrif hans á unglingamenninguna sem og samstöðu foreldra um að virða útivistarreglurnar svo fátt eitt sé nefnt. Sáttmálinn kemur út í mismunandi útgáfum fyrir hvert stig grunnskólans og er honum ætlað að vekja uppalendur til vitundar um mikilvægi þess að sýna uppvexti og skólagöngu barna sinna og unglinga áhuga og setja þeim skýr mörk.
Í þessu forvarnarverkefni er m.a. bent á að foreldrar sem senda barn útsofið í skólann eru að leggja sitt af mörkum til að barnið nái æskilegum námsárangri. Einnig tekur sáttmálinn til eineltis, samábyrgðar og reglna um notkun á tækni eins og tölvuleikjum og aðgengi að netinu og snjallsímum en í þeim málum er mikilvægt fyrir foreldra að geta haft samráð. Sáttmálinn er fáanlegur á þjónustumiðstöð Heimilis og skóla.
Hér er hægt er að nálgast sáttmálann á rafrænan hátt.
Foreldrasáttmáli – leiðbeiningar
Foreldrasáttmáli – Yngsta stig – Plakat
Foreldrasáttmáli – Yngsta stig – Ítarefni
Foreldrasáttmáli – Miðstig – Plakat
Foreldrasáttmáli – Miðstig – Ítarefni
Foreldrasáttmáli – Elsta stig – Plakat
Foreldrasáttmáli – Elsta stig – Ítarefni
The parental consensus in English (Foreldrasáttmálinn á ensku. Veggspjald og ítarefni)
Parental Consensus – Guidelines
Parental Consensus – Poster – 1-4 grade
Parental Consensus – Poster – 10-12 grade
Parental Consensus – Poster – 13-16 grade
Parental Consensus – Additional Material – 1-4 grade
Parental Consensus – Additional Material – 5-7 grade
Parental Consensus – Additional Material – 8-10 grade
Ítarefni Foreldrasáttmálans er einnig aðgengilegt á pólsku.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast kynningarglærur sem hægt er að styðjast við í kynningu eða fyrirlögn foreldrasáttmálans.
Foreldrasáttmáli_1.-4. bekkur_glærur
Foreldrasáttmáli_5.-7. bekkur_glærur
Foreldrasáttmáli_8.-10. bekkur_glærur