Markmið Foreldraverðlauna Heimilis og skóla er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fer fram innan leik-, grunn og framhaldsskóla, og þeim mörgu verkefnum sem stuðla að öflugu og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Foreldraverðlaun eru veitt til eins verkefnis/viðfangsefnis. Ef dómnefnd hefur þótt ástæða til, hafa jafnframt verið veitt sérstök hvatningar- eða dugnaðarforkaverðlaun. Ekki er þó hægt að tilnefna dugnaðarfork eða tilnefna aðila til hvatningarverðlauna.
Heimili og skóli – landssamtök foreldra standa fyrir Foreldraverðlaunum en samtökin sjálf, stjórn eða starfsfólk tilnefna ekki verkefni, heldur vinnur dómnefnd úr innsendum tilnefningum. Niðurstöður dómnefndar byggjast á greinargerðum og rökstuðningi þeirra aðila sem tilnefndu.
Tilnefning fer fram á rafrænu eyðublaði á vefsvæði Heimilis og skóla og þar er jafnframt að finna leiðbeiningar um tilnefninguna. Einnig er hægt fá upplýsingar hjá skrifstofu samtakanna í síma 516-0100.
Vakin er athygli á að verðlaun eru aðeins veitt til verkefnis/viðfangsefnis sem tilnefnt hefur verið með formlegum hætti á rafrænu eyðublaði á vefsvæði landssamtakanna.
Grundaskóli á Akranesi hlaut Foreldraverðlaunin 2012
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 17. sinn á tuttugasta afmælisári samtakanna þann 16. maí, við athöfn sem hófst kl. 14:00 í Þjóðmenningarhúsinu.
Formaður Heimilis og skóla, Ketill B. Magnússon, afhenti verðlaunin en Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, ávarpaði viðstadda fyrir hönd ráðherra sem forfallaðist því miður á síðustu stundu. Í ræðu ráðherra, sem Guðni flutti, kom fram að á næstu dögum verði gengið frá þjónustusamningi mennta- og menningarmálaráðuneytisins við Heimili og skóla fyrir yfirstandandi ár og í kjölfarið verður unnið að langtímasamningi.
Söngleikjaverkefni Grundaskóla á Akranesi hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2012. Markmiðin með söngleikjaverkefninu eru fjölmörg og tengjast þau beint eða óbeint inn í námskrá skólans. Slík verkefni eru hins vegar kostnaðarsöm, tímafrek og eru að mestu leyti unnin utan við hefðbundinn skólatíma. Foreldrar hafa stutt þessi verkefni með mikilli sjálfboðavinnu og öflugri þátttöku með börnum sínum. Aðkoma foreldra er margvísleg og mikilvæg því mörg verk þarf að vinna við slíka uppsetningu og verkefnið eflir skólabraginn.
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt Hvatningarverðlaun og Dugnaðarforkaverðlaun:
Hvatningarverðlaun 2012 hlaut Þorpið – þekkingarsamfélag en fyrir því fer Ragnheiður Kristinsdóttir iðjuþjálfi og foreldri í Laugarnesskóla. Verkefnið er starfrækt innan Laugarnesskóla og miðar að því að styðja við foreldra þeirra barna sem þurfa sérstakan stuðning innan skólakerfisins og byggist á jafningjafræðslu og þekkingarmiðlun.
Dugnaðarforkaverðlaun 2012 fékk Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, fyrir ötult starf í þágu foreldra í Fjarðabyggð. Að þessu sinni bárust 28 tilnefningar til verðlaunanna. Hægt er að skoða tilnefningar hér í bæklingi Foreldraverðlaunanna 2012.
Í dómnefnd árið 2012 sátu:
- Borghildur Jósúadóttir, formaður dómnefndar, stjórn Heimilis og skóla
- Amalía Björnsdóttir, Menntavísindasvið Háskóla Íslands
- Haraldur F. Gíslason, Fomaður félags leikskólakennara
- Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, formaður foreldrafélags FG
- Sigríður Lára Ásbergsdóttir, deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Guðbjörg Jónsdóttir, skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
- Árni Guðmundsson, verkefnastjóri um aðgerðir gegn einelti
Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska öllum tilnefndum innilega til hamingju og sérstaklega þeim sem unnu til verðlauna!


Facebook