Bæklingar
Kynningarbæklingar fyrir öll skólastig
Nýir kynningarbæklingar fyrir öll skólastig: leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, hafa nú litið dagsins ljós og er hægt að nálgast þá hér á pdf formi:
- Virkir foreldrar betri framhaldsskóli
- Virkir foreldrar betri grunnskóli
- Virkir foreldrar betri leikskóli
Einelti - góð ráð til foreldra
Bæklingur þessi er skrifaður af Þorláki H. Helgasyni, framkvæmdastjóra Olweusaráætlunarinnar á Íslandi. Frjálst er að nota efni þessa bæklings, sé heimildar getið: Heimili og skóli og Þorlákur H. Helgason. Í bæklingnum er einelti skilgreint, ábyrgð ígrunduð, úrræði skoðuð og góð ráð gefin. Hægt er að nálgast bæklinginn hér á pdf formi.
10 netheilræði
SAFT -Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um örugga netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd. Nýr bæklingur með 10 netheilræðum hefur litið dagsins ljós og hvetjum við foreldra og forráðamenn sem og starfsmenn skóla til að gefa sér góðan tíma í að ræða netheilræðin við barnið. Hægt er að nálgast bæklinginn á www.saft.is en líka hér á pdf formi.
Nýr bæklingur frá Heimili og skóla: Leggjum börnum lið... við læsi
Bæklingurinn er ætlaður til að aðstoða foreldra við undirbúa börn sín fyrir lestrarnám og eiga með þeim notalegar stundir með því að lesa fyrir þau. Í bæklingnum eru hagnýtar ráðleggingar og tillögur að bókavali. Leggjum börnum lið... við læsi er gefinn út í samvinnu við Kennaraháskóla Íslands.
Hér má nálgast bæklinginn á pdf formi: Leggjum börnum lið... við læsi
Hér er lengri bókalisti sem hægt er að prenta út.
Bæklingurinn er fáanlegur hjá Heimili og skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 562 7475.
Fréttabréf Heimilis og skóla
Framvegis mun Fréttabréf Heimilis og skóla einnig vera aðgengilegt á Netinu og vonumst við hjá samtökunum til að það verði til þess að sem flestir geti nýtt sér þann fróðleik sem þar er að finna.



