Bæklingar

Kynningarbæklingar fyrir öll skólastig

Nýir kynningarbæklingar fyrir öll skólastig: leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, hafa nú litið dagsins ljós og er hægt að nálgast þá hér á pdf formi:

Bæklingarnir eru nú einnig til á pólsku:

Einelti - góð ráð til foreldra

Bæklingur þessi er skrifaður af Þorláki H. Helgasyni, framkvæmdastjóra Olweusaráætlunarinnar á Íslandi. Frjálst er að nota efni þessa bæklings, sé heimildar getið: Heimili og skóli og Þorlákur H. Helgason. Í bæklingnum er einelti skilgreint, ábyrgð ígrunduð, úrræði skoðuð og góð ráð gefin. Hægt er að nálgast bæklinginn hér á pdf formi.

10 netheilræði

SAFT -Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um örugga netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd. Nýr bæklingur með 10 netheilræðum hefur litið dagsins ljós og hvetjum við foreldra og forráðamenn sem og starfsmenn skóla til að gefa sér góðan tíma í að ræða netheilræðin við barnið. Hægt er að nálgast bæklinginn á www.saft.is en líka hér á pdf formi.

Bæklingur frá Heimili og skóla: Leggjum börnum lið við læsi

Bæklingurinn er ætlaður til að aðstoða foreldra við undirbúa börn sín fyrir lestrarnám og eiga með þeim notalegar stundir með því að lesa fyrir þau. Í bæklingnum eru hagnýtar ráðleggingar og tillögur að bókavali. Leggjum börnum lið... við læsi er gefinn út í samvinnu við Kennaraháskóla Íslands.

Hér má nálgast bæklinginn á pdf formi: Leggjum börnum lið við læsi.

Hér er lengri bókalisti sem hægt er að prenta út.

Bæklingurinn er fáanlegur hjá Heimili og skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 562 7475.

 

Fréttabréf Heimilis og skóla

Samstíga, vefrit Heimilis og skóla, er að öllu jöfnu gefið út einu sinni í mánuði. Ritið er sent rafrænt til félagsmanna, samstarfsaðil og annarra velunnara. Ef þú vilt fá ritið sent sendu okkur þá beiðni á netfangið hrefna@heimiliogskoli.is. Útgefin tölublöð er að finna hér á heimasíðunni undir: útgefið efni - Samstíga vefrit.