Starfsemi
Heimili og skóli - landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum. Foreldrar og forráðamenn barna geta gerst félagar í Heimili og skóla og aðrir geta gerst styrktarfélagar. Samtökin veita ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka og gefa út tímarit og ýmis konar efni um foreldrastarf.
Samtökin voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga. Þúsundir foreldra eru félagar í Heimili og skóla og með stuðningi þeirra hefur tekist að byggja upp þjónustu við foreldra og félög þeirra.
Ráðgjöf
Ef þú hefur áhyggjur af einhverju varðandi skólagöngu barnsins þíns getur þú leitað til skrifstofu Heimilis og skóla. Við reynum að hjálpa þér við að finna heppilega leið til að leysa málið með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Þú þarft ekki að segja til nafns frekar en þú vilt. Símanúmer okkar er 516-0100 (og eldra númer, 562-7475, virkar ennþá). Við erum við símann kl. 9 - 12.
Netfang: heimiliogskoli@heimiliogskoli.is
Fyrirlestar á vegum Heimilis og skóla
Samtökin bjóða upp á fyrirlestra fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Meðal annars er boðið upp á:
- Fyrirlestra um foreldrastarf, bekkjarstarf og skólamál almennt
- Námskeið fyrir bekkjarfulltrúa
- Að efla samstarf foreldra og samstarf heimila og skóla
- Kynningar á breytingum sem fylgja nýju menntalögunum
- Foreldraráð í leikskólum, skólaráð í grunnskólum og foreldraráð í framhaldsskólum
- SAFT - örugg netnotkun barna og unglinga
Aðaláherslur í starfseminni eru þessar:
- að veita foreldrum / félagsmönnum stuðning og liðveislu og miðla upplýsingum til foreldra svo að þeir geti betur sinnt uppeldi barna sinna og skólagöngu þeirra
- að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri við yfirvöld og vinna að því að auka áhrif foreldra á skólastarf.
- að efla starf foreldrafélaga og leggja þeim lið svo að þau verði sem virkust þannig að foreldrar finni þar vettvang til samstarfs við skólann og til þátttöku í foreldrastarfi á landsvísu.
Þjónusta Heimilis og skóla felst einkum í eftirfarandi:
- að veita foreldrum/félagsmönnum stuðning og liðveislu til að þeir geti axlað uppeldishlutverk sitt
- að miðla upplýsingum til foreldra svo þeir séu betur í stakk búnir til að taka þátt í mótun skólasamfélagsins
- að efla starf foreldrafélaga svo þau verði sem virkust og foreldrar finni þar vettvang til samstarfs við skólann og til þátttöku í foreldrastarfi á landsvísu
- að efla starf foreldraráða svo þau geti veitt skólum og skólayfirvöldum virkt og uppbyggjandi aðhald
- að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri við yfirvöld þegar teknar eru ákvarðanir sem varða skóla- og uppeldismál
- að standa, ein eða í samvinnu við fleiri aðila, að verkefnum og vinnu sem stuðlar að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga og bættum hag fjölskyldna
- að undirbúa stofnun foreldrafélaga við framhaldsskóla landsins


