Námskeið og fyrirlestrar Heimilis og skóla - Landssamtaka foreldra:
Kynning á starfsemi Heimilis og skóla - Landssamtaka foreldra
Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla
Markhópur: Hentar fyrir samkomur og fundi sem vilja stutta kynningu á starfsemi Heimilis og skóla - Landssamtaka foreldra.
Efnistök: Almenn kynning á starfsemi Heimilis og skóla. Farið er yfir sögu samtakanna, hlutverk og starfsemi. Fjallað er um hvað hefur áunnist á tveimur áratugum og farið yfir verkefni samtakanna s.s. Foreldrasáttmálann, samstarf um ráðstefnur og málþing, Saman hópinn, Náum áttum, örugga netnotkun, SAFT o.s.frv.
Hver fyrirlestur er aðlagaður að viðeigandi skólastigi.
Námskeið fyrir bekkjarfulltrúa
Fyrir grunnskóla
Markhópur: Bekkjarfulltrúar.
Efnistök: Farið er yfir hvað felst í því að vera bekkjarfulltrúi, hvert hlutverk þeirra er innan bekkjarins og í samskiptum við aðra eins og foreldrafélag, skólaráð og yfirstjórn skólans. Hvað gera bekkjarfulltrúar? Hvernig er best að skipuleggja fundi og hvernig funda á bekkjarfulltrúinn að boða til?
Foreldrasamstarf - forvörn í sjálfu sér
Fyrir grunnskóla
Markhópur: Foreldrar grunnskólabarna.
Efnistök: Farið er yfir ávinninginn af góðu samstarfi foreldra sín á milli og einnig hvernig foreldrar geta tryggt og treyst samstarf sitt við skólann. Farið er yfir þau tækifæri sem foreldrar hafa til að hafa afskipti af og fylgjast betur með skólastarfinu. Menntalögin eru kynnt með þetta í huga og þær breytingar sem orðið hafa á þeim og gera foreldrum kleift að hafa meiri áhrif á skólastarfið. Fjallað er um Foreldrasáttmála Heimilis og skóla sem stuðlar að góðri samvinnu foreldra og er forvörn fyrir börn og unglinga. Tekið er á atriðum eins og tölvu- og tækninotkun barna og unglinga og hvernig foreldrar geta haft meiri stjórn og áhrif á hana hjá börnum sínum.
Foreldrasamstarf - forvörn í sjálfu sér
Fyrir leikskóla
Markhópur: Foreldrar leikskólabarna.
Efnistök: Fjallað er um mikilvægi þess að foreldrar hefji foreldrasamstarf strax í leikskóla og læri að vinna með öðrum foreldrum og með skólanum. Farið er yfir helstu þætti í menntalögunum sem snerta leikskólann og hvernig foreldrar geta tekið meiri þátt og fjallað um mikilvægi þess að þeir nýti sér rétt sinn og getu til að hafa áhrif.
Foreldrasamstarf - forvörn í sjálfu sér
Fyrir framhaldsskóla
Markhópur: Foreldrar framhaldsskólanema.
Efnistök: Fjallað er um menntalögin með tilliti til framhaldsskólanna og þau tækifæri sem foreldrar hafa til að vera áhrifaríkir skólaforeldrar fram yfir 18 ára aldur barna sinna. Farið er yfir það hvað öflugt forvarnarstarf skiptir miklu máli í framhaldsskóla og lögð er áhersla á að foreldrar taki virkan þátt í skólagöngu unglinga í framhaldsskóla.
_______________________________________________________________________
Verð og skipulag:
Kostnaður fyrir hvern fyrirlestur er 30.000 fyrir félagsmenn og 50.000 fyrir aðra. Ferða/aksturskostnaður reiknast sér. Hver fyrirlestur er einn klukkutími og gert er ráð fyrir 30 mínútum í fyrirspurnir, umræður og verkefnavinnu. Þó er hægt að aðlaga fyrirlestra og námskeið að þörfum hverju sinni.
_______________________________________________________________________________________________
Til hvers?
Foreldrar eru í lykilhlutverki í uppeldi barna sinna og skólagöngu, það hafa rannsóknir m.a. sýnt fram á. Sá tími sem börn dvelja í skólanum er lengri en nokkru sinni fyrr og því er mikilvægt að skólinn og foreldrar stilli saman strengi sína. Eitt mikilvægasta verkefni skólaforeldra er að stuðla að jákvæðu viðhorfi barna sinna til námsins og skólans, hvetja þau og styðja og gera raunhæfar kröfur til þeirra. Rannsóknir sýna að áhugi á námi er forsenda árangurs og þessi áhugi mótast að miklu leyti heima fyrir. Gott samstarf heimilis og skóla stuðlar að betri árangri nemandans og vellíðan. Ljóst er því að til mikils er að vinna og nú hafa foreldrar aukin tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið og vera betur upplýstir. Hins vegar þarf oft að benda á þær leiðir sem færar eru og þar koma Heimili og skóli - Landssamtök foreldra meðal annars til sögunnar. Allir græða á því að kynna sér betur samstarf heimilis og skóla og foreldrasamstarf; skólar, nemendur og foreldrar.


