Fréttir
26.01.2012 | Fréttir
Kennsla fellur niður
Kennsla fellur niður á þó nokkrum stöðum í dag vegna veðurs.
Kennsla fellur niður í eftirtöldum skólum í dag:
Varmahlíðaskóla en skólinn verður þó opinn.
Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Grunnskólanum á Ísafirði.
Grunnskólanum í Bolungarvík.
Grunnskóla Önundarfjarðar og Leikskólanum Grænagarði á Flateyri vegna ófærðar og veðurs.
Grunnskólanum á Hólmavík.
Flóaskóla í Flóahreppi vegna ófærðar.
Húnavallaskóla og leikskólanum Vallabóli.
Grunnskólanum á Hofsósi og í Sólgarði í Skagafirði.
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi vegna ófærðar.
Skólaakstur í Húnaþingi vestra fellur niður í dag. Ekkert skólahald verður því á Laugarbakka og Borðeyri en grunnskólinn á Hvammstanga verður opinn.
Foreldrar barna í Álftanesskóla á Álftanesi eru beðnir um að halda börnunum heima vegna ófærðar.
Seinkun verður á skólahaldi grunnskóla Borgarfjarðar. Athugað verður með skólaakstur klukkan hálfníu. Skólahald hefst á réttum tíma í Hvanneyrardeild.
Kennsla fellur niður í Varmahlíðarskóla en skólinn verður þó opinn.
Annars eru upplýsingar sem þessar oftar uppfærðar á fésbókarsíðu Heimilis og skóla (facebook) og þá í takt við nýjustu fréttir.
Til baka

