Fréttir
25.01.2012 | Fréttir
Foreldrar mótmæla harðlega
Stjórn foreldrafélags Hvassaleitisskóla mótmælir harðlega þeim áformum skólayfirvalda í Reykjavík að ætla að hýsa stóran hluta nemenda Breiðagerðisskóla í Hvassaleitisskóla næsta vetur meðan byggingarframkvæmdir standa yfir í fyrrnefnda skólanum.
Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar eftir fund foreldrafélagsins í gærkvöldi.
Þetta gerist án lögbundins samráðs við foreldra og skólaráð á sama tíma og viðkvæmt og afar umdeilt sameiningarferli stendur yfir í Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla.
Þetta þýðir að nemendafjöldi í skólanum mun meira en tvöfaldast en sjö bekkjardeildir verða eftir í Hvassaleitisskóla næsta skólavetur eftir að unglingadeild skólans hefur verið flutt þaðan í aðra skóla. Þrátt fyrir þetta leyfa skólayfirvöld sér að halda því fram að ekki sé um meiriháttar breytingu á skólastarfi að ræða og því þurfi ekki að bera hana undir skólaráð, eins og lög gera ráð fyrir, segir í ályktun foreldrafélagsins.
mbl.is


