Fréttir

24.01.2012 | Á döfinni

Námskeið - Samskipti foreldra og barna

Samskipti foreldra og barna - námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands

Þetta námskeið, sem var fyrst haldið fyrir 25 árum síðan, hefur sýnt og sannað að það fellur vel að viðhorfum til uppeldis á Íslandi. Áherslan er á leiðandi uppeldisaðferðir sem íslenskar rannsóknir hafa sýnt að stuðla best að forvörnum gegn reykingum og notkun vímugjafa á unglingsárunum. Auk þess sýna rannsóknir að ef foreldrar eru leiðandi í sínu uppeldi eru börn þeirra líklegri til að standa sig vel í skóla og hafa jákvæð viðhorf til lífsins.

Á námskeiðinu er fjallað um aðferðir dr. Thomas Gordon sem hefur skrifað fjölmargar bækur um mannleg samskipti og hafa tvær bækur hans verið þýddar á íslensku. Dr. Thomas hefur verið tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels vegna hugmynda sinna um friðsamlega lausn á ágreiningi manna á meðal, á vinnustöðum, í fjölskyldum og annars staðar sem við á. Námskeið hans hafa verið haldin í fjölmörgum löndum víða um heim.
Með hugmyndum Thomasar er lögð áhersla á að kenna foreldrum virka hlustun, ég-boð og aðferðir til að leysa úr ágreiningi í sátt innan fjölskyldunnar. Virk hlustun er aðferð sem auðveldar foreldri að hlusta og sýna barni sínu skilning og virðingu þegar eitthvað bjátar á hjá því án þess að taka ábyrgðina af barninu. Ennfremur er lögð áhersla á stuðning foreldra til að kenna barninu að leysa sjálft vandann og stuðla að því að efla frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði hjá því. Ég-boð er aðferð sem foreldrar geta notað þegar þeir þurfa að setja skýrar reglur um hegðun barnanna og mikilvægt er að börnin hlusti á og taki tillit til þeirra og annarra.

Námskeiðið er byggt á stuttum fyrirlestrum, umræðum og æfingum.

Skráningarfrestur er til 30. janúar 2012.

Kennari: Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðing
Tími: Mán. og mið. 6., 8., 13., 15. og 20. feb. kl. 20:15 - 22:15 (5x)
Verð: 28.500 kr. Hjónum og pörum sem sækja námskeiðið býðst 10% afsláttur af báðum námskeiðsgjöldum.
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7
Nánari upplýsingar og skráning hér

 

Til baka