Fréttir

24.01.2012 | Á döfinni

Dagur leikskólans 6. feb. 2012

Mánudaginn 6. febrúar verður Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins.

Sjötti febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. 
 
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.  Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.  

Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m.a. verið auglýst  eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald og verður þeim dreift  til leikskóla og sveitafélaga.  Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið.  Dæmi um spurningar sem þau svöruðu:  Hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera?  Myndböndin  verða notuð við ýmis tækifæri og reynt að koma efni þeirra  á framfæri í fjölmiðlum.

Leikskólar hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti. Gaman væri að sjá sem flesta segja frá á heimasíðu leikskóla og sveitafélaga hvað á að gera í leikskólum í tilefni dagsins.  Einnig bendum við á hugmyndabanka á heimasíðu FL http://fl.ki.is/?PageID=2121. Þar má sjá hvað gert hefur verið á degi leikskólans síðustu ár en jafnframt hvetjum við starfsfólk leikskóla til að koma með nýtt innlegg í hugmyndabankann.


Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda Degi leikskólans á lofti og vonumst eftir góðri þátttöku.

Við bjóðum góðan dag, alla daga

 
Torfhildur Sigurðardóttir
Formaður kynningarnefndar Félags leikskólakennara

Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti

Björk Ólafsdóttir
Verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Hrefna Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri  Heimilis og skóla -landssamtaka foreldra

 

Til baka