Fréttir
20.01.2012 | Fréttir
Leikskólaforeldrar funda
Fulltrúar leikskólaforeldra í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi funduðu með formanni og framkvæmdastjóra Heimilis og skóla í dag.
Ýmis mál er snerta leikskólaforeldra voru rædd og má þar helst nefna hækkanir á gjaldskrám, fæði, mönnun starfsmanna, reglur (eða regluleysi) um hámarksfjölda barna á starfsmann (fermetra) og inntökuskilyrði á leikskóla - þ.á.m. stöðu barna sem fædd eru 2010. Rituð var fundargerð og unnið verður frekar úr niðurstöðum fundar á næstunni.
Frá fundi (á myndina vantar Friðrik Friðriksson frá SAMLEIK - Samtökum leikskólaforeldra í Kópavogi en hann var nýfarinn þegar smellt var af:



