Fréttir

30.11.2011 | Á döfinni

Ráðstefna um útinám á Íslandi - 2. des.

Ráðstefna um útinám verður haldin 2. desember næstkomandi í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð kl.10-16.30.

 

Ráðstefnan er opin öllum sem starfa við og hafa áhuga á útinámi og útivist, til dæmis þeim er starfa í skólum, í frístundastarfi, hjá félögum og í fyrirtækjum.

Markmiðið er að leiða saman þá sem standa að útinámi og útivist á Íslandi, vekja athygli á rannsóknum og áhugaverðu starfi á vettvangi sem og leggja drög að stefnu og inntaki þverfaglegrar menntunar á háskólastigi á sviði útináms og útivistar.


Á ráðstefnunni kynna ýmsir aðilar starfsemi sína og segja frá einstökum verkefnum. Sagt verður frá útinámi í skóla og frístundastarfi, félagasamtök kynna sína starfsemi og fagfólk kynnir rannsóknir og þróunarstarf.

Skráning á ráðstefnuna er á
https://utinam.hi.is/skraning_radstefnu.

Ráðstefnugjald er 1000 kr.

 

Háskóli Íslands stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Landbúnaðarháskóli Ísland og Hólaskóla – Háskólann á Hólum.

 

Upptökur frá fyrirlestrum og málstofum verða aðgengilegar á vef Menntavísindasviðs http://www.hi.is/menntavisindasvid/upptokur_fra_radstefnum_og_fyrirlestrum_vid_menntavisindasvid

fljótlega eftir ráðstefnuna.

Til baka