Fréttir

02.09.2010 | Fréttir

Breyttur útivistartími barna

Samkvæmt útivistarreglum sem taka gildi 1. september mega börn 12 ára og yngri vera úti til klukkan átta að kvöldi. Unglingar á aldrinum 13 - 16 ára mega vera úti til klukkan tíu. Aldur miðast við fæðingarár.

Bregða má út af reglunum fyrir eldri hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og er ætlað að tryggja börnum og unglingum nægan svefn.

Í tilkynningu frá lögreglu þar sem minnt er á breyttar útivistarreglur, segir meðal annars: „Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst meðal annars að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið."

Til baka