Fréttir
01.09.2010 | Fréttir
Yfir 82% kennara í framhaldsskólum hafa kennsluréttindi
Alls höfðu 82,2% starfsmanna við kennslu í nóvember 2009 kennsluréttindi og hefur fjölgað úr 78,0% árið áður. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug.
Með réttindakennara er átt við þann starfsmann við kennslu sem hefur leyfisbréf frá menntamálaráðuneytinu til að kalla sig framhaldsskólakennara. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug. Hæst var hlutfallið skólaárið 2005-2006 eða 78,7%.
Sjá nánar frétt hér á vef Hagstofu Íslands.
Til baka

