Fréttir

12.01.2011 | Á döfinni

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í apríl 2012

Nánari dagsetning hátíðarinnar verður auglýst síðar. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn.

Barnamenningarhátíð verður ekki haldin í ár, en staðfest að hún verði haldin að ári, að öllum líkindum í vikunni 16.- 22. apríl en sumardagurinn fyrsti er í þeirri viku, fimmtudaginn. 19. apríl 2012.


Það eru vissulega nokkur vonbrigði að geta ekki haldið hátíðina í ár en á sama tíma hlökkum við til og erum ánægð með að geta hafið undirbúninginn að hátíðinni svona snemma. Við vonumst til að þátttaka verði jafn góð og almenn og síðastliðið vor.

Höfuðborgarstofa mun sjá um skipulagningu og undirbúning Barnamenningarhátíðar 2012 í góðu samstarfi við skóla, leikskóla og margvísleg félög og samtök.  Allar hugmyndir eru vel þegnar. Blásið verður til samráðsfunda í september næstkomandi.

Best Regards - Með kveðju,

Skúli Gautason
viðburðastjóri / events manager
Reykjavík Tourist Information Centre
Höfuðborgarstofu - Visit Reykjavík
Aðalstræti 2 - 101 Reykjavik - Iceland
Phone (+354) 590 1506
skuli.gautason@reykjavik.is
www.visitreykjavik.is / www.reykjavik.is

Til baka