Fréttir

16.09.2010 | Á döfinni

Rástefnan Æskan - rödd framtíðar - 28.-30. október 2010

Ráðstefnan Æskan- rödd framtíðar verður haldin á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík dagana 28. - 30. október 2010.

Samanburðarrannsókn var framkvæmd á síðasta ári meðal
norrænna ungmenna á aldrinum 16-19 ára, á öllum Norðurlöndunum þ.m.t.
Færeyjum Grænlandi og á Álandseyjum. Á ráðstefnunni verða
niðurstöður rannsóknarinnar kynntar.

Kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar verður fylgt eftir með málstofum og umræðum þar sem stjórnmálamenn, fræðimenn og aðrir sem tengjast ungu fólki munu
fjalla um hvernig á að halda áfram að vinna að framkvæmd núverandi
stefnu og hvernig hægt er að auðvelda aukna samvirkni á milli stefnu
og aðgerða Norðurlanda í málefnum ungmenna.

Heimasíða ráðstefnunnar er www.nyr2010.is

 

Til baka