Fréttir
19.04.2010 | Á döfinni
Kennaramenntun í deiglu – samræða um menntun kennara
Menntavísindasvið boðar til fimm opinna funda á næstu vikum. Er tilgangurinn að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðu um kennaramenntun og að kynna þær áætlanir um námsskipan sem Menntavísindasvið vinnur að um þessar mundir.
Árið 2008 voru samþykkt lög frá Alþingi um að menntun kennara á skólastigunum frá leikskóla til framhaldsskóla skuli frá og með júlí 2011 ljúka með meistaragráðu. Í kjölfar lagasetningarinnar hófst vinna við skipulag fimm ára kennaranáms í Kennaraháskóla Íslands og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Af þessu tilefni boðar Menntavísindasvið til fimm opinna funda á næstu vikum, sjá meðfylgjandi dagskrá. Tilgangur fundanna er í fyrsta lagi að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðu um kennaramenntun og í öðru lagi að kynna þær áætlanir um
námsskipan sem Menntavísindasvið vinnur að um þessar mundir.
Umræða um og endurskoðun á kennaramenntun hér á landi er í takt við það sem gerist annars staðar, s.s. í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, þar sem fram fer grundvallarendurskoðun á menntun kennara. Mikið er rætt um kennaramenntun á samnorrænum vettvangi en einnig í fjölmörgum Evrópulöndum utan Norðurlandanna og víða um heim. Álitaefnin eru mörg og tekist er á um inntak kennaramenntunar en rannsóknir staðfesta að kunnátta kennara skiptir sköpum um árangursríkt skólastarf.
Á hverjum fundi verða stutt framsöguerindi og síðan opnar umræður. Samantekt úr umræðum verður kynnt á síðasta fundi. Verður hún höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skipulag kennaranáms við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Fundirnir eru öllum opnir og verða í húsnæði Menntavísindasviðs kl. 15.00–16.30.
Allt áhugafólk um kennaramenntun er hvatt til að taka þátt í samræðunni.
Sjá hér dagskrá fundanna, sem haldnir verða á tímabilinu 26. apríl til 23. júní 2010.
Til baka

