Fréttir
12.03.2010 | Á döfinni
Fyrirlestrar um einelti
Liðsmenn Jerico - Landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda voru stofnuð 6. október 2008. Þau eru vettvangur ráðgjafar, vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti. Liðsmenn Jerico eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum. Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra.
Liðsmenn Jerico auglýsa nú fyrirlestra um einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og sjálfsvíg, forvarnir og sorg. Fyrirlestrarnir eru á ensku og öllum að kostnaðarlausu.
Dagskráin er sem hér segir:
- Reykjavík: Föstudagur 19. mars kl. 08.30 – 12.00 Grand Hótel Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoreykjavik@gmail.com
- Akureyri: Laugardagur 20. Mars kl. 12.00 – 15.30 Síðuskóla Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoakureyri@gmail.com
- Reyðarfjörður: Sunnudagur 21. Mars kl. 13.00 – 16.30 Safnaðarheimilinu Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoaustfirdir@gmail.com
Nánari upplýsingar er að finna hér í auglýsingu.


