Fréttir
03.03.2010 | Fréttir
Menntaþing 5. mars næstkomandi
Menntaþing verður haldið í Valsheimilinu að Hlíðarenda þann 5. mars næstkomandi á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Yfirskrift þingsins er Heildstæð menntun á umbrotatímum og er tilgangur þess að efna til opinnar umræðu um menntastefnu.
Á þinginu verða kynntar áherslur í nýjum námskrám allra skólastiga og afrakstur af þjóðfundum um menntamál. Í nýrri menntastefnu er lagt til að fimm grunnþættir verði í öndvegi í öllu námi frá leikskóla til enda framhaldsskóla. Þessir þættir eru jafnrétti, lýðræði, skapandi skólastarf, menntun til sjálfbærni og læsi í víðum skilningi. Eins verða reifuð og rædd ýmis álitamál sem varða breyttar aðstæður í skólasamfélaginu, svo sem hvort stytta eigi námstíma í almennu námi úr 14 árum í 13, hvernig komið verði á fót framhaldsskóla fyrir alla og hvernig tryggja megi velferð í skólum þegar misskipting eykst og fjármagn í menntakerfinu fer minnkandi.
Skráning á þingið fer fram á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is/menntathing/skraning en þar má einnig finna dagskrá þingsins.
Nánari upplýsingar er að finna í auglýsingu. Smellið á mynd.
Til baka



