Fréttir
02.03.2010 | Á döfinni
Gæði eða geymsla? Ráðstefna um starfshætti tómstundaheimila
Ráðstefna um starfshætti tómstundaheimilia (skóladagvista, dægradvalar, frístundar, lengdrar viðveru, frístundaheimila o.fl.) verður haldin föstudaginn 9. apríl næstkomandi í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ, Bratta, klukkan 10 til 12:30 og 13:15-15.15.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi Samtaka áhugafólks um skólaþróun, Menntavísindasviðs HÍ, Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra.
Ráðstefnustjóri er Árni Guðmundsson. Ráðstefnugjald er 1.500 krónur og eru kaffiveitingar innifaldar. Skráning fer fram á heimasíðu Samtaka áhugafólks um skólaþróun, www.skolathroun.is.
Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna hér í auglýsingu (smellið á mynd):
Til baka


