Fréttir

02.03.2010 | Fréttir

Atvinna: staða verkefnastjóra

Heimili og skóli og SAFT leita að öflugum einstaklingi til að sinna 80% starfi verkefnastjóra í þrjá mánuði vegna fæðingarorlofs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starfs- og ábyrgðasvið:
•    Umsjón með kynningarmálum
•    Umsjón með tölvumálum (heimasíða og fésbók)
•    Útgáfa og umbrot á útgefnu efni (InDesign)
•    Ráðgjöf og svörun fyrirspurna

Menntunar- og hæfniskröfur:
•    Háskólapróf eða reynsla af sambærilegum verkefnum
•    Enskukunnátta nauðsynleg og eitt Norðurlandamál er kostur
•    Reynsla af fjölmiðlum er kostur
•    Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
•    Þekking og áhugi á skóla-, íþrótta-, tómstunda- og fjölskyldumálum
•    Góð tölvukunnátta
•    Skipulögð vinnubrögð
•    Jákvæðni, frumkvæði og heiðarleiki

Umsjón með starfinu hefur Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, sigurlaug@heimiliogskoli.is.
Umsóknir sendist á netfangið heimiliogskoli@heimiliogskoli.is eða til Heimilis og skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 5. mars, kl. 16. 

Heimili og skóli – landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum.  Samtökin veita ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka og gefa út tímarit og ýmiss konar efni um foreldrasamstarf.  Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis – og menntunarskilyrðum barna og unglinga.

 


Til baka