Fréttir

22.02.2010 | Á döfinni

Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19.-25. apríl 2010

Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 19. – 25. apríl. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn.

Dagskrá hátíðarinnar er farin að taka á sig afar spennandi mynd og nú þegar hafa borist
atriði frá fjölmörgum skólum, leikskólum, menningarstofnunum, félagasamtökum af ýmsu tagi og einstaklingum.

Við hvetjum alla sem hafa hug á að taka þátt að hafa samband hið fyrsta við
gurry@visitreykjavik.is og skula.gautason@reykjavik.is

Höfuðborgarstofa vinnur ásamt verkefnisstjórn hátíðarinnar að samræmingu viðburða, kynningarstarfi og fleiru en viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríku fólki út um alla borg.


Nánar á: reykjavik.is/barnamenningarhatid

 

Til baka