Fréttir
08.02.2010 | Á döfinni
Hugsaðu áður en þú sendir! - Málþing SAFT
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.
Á málþinginu verður m.a. fjallað um: netið og vinasöfnun á félagsnetsíðum, myndbirtingar, rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks, friðhelgi og persónuvernd, lögreglurannsókn mála og veitt verða verðlaun í nemendasamkeppni. Annars er nánari dagskrá að finna hér að neðan og í viðhengi.
Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.
Dagskrá:
- Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
- Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
- Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
- Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
- Jónas Kristjánsson, ritstjóri og hestamaður: Þolmörkin færðust til
- Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
- Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
- Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn mála tengd netinu
- Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
- Pallborðsumræður
- Veitingar
Málþingið verður sent beint út á netinu.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is).
Með því að smella á myndina stækkar auglýsingin:
Til baka

