Fréttir
08.02.2010 | Á döfinni
Umgengnistálmanir og innræting eftir skilnað - ráðstefna
Þriðjudaginn 9. febrúar næstkomandi verður ráðstefna frá kl.15-17 á Hótel Loftleiðum í Þingsölum 1-3 um umgengnistálmanri og innrætingu eftir skilnað. Félag um foreldrajafnrétti stendur fyrir ráðstefnunni en nánari upplýsingar er að finna á www.foreldrajafnretti.is.
Dagskrá:
- Foreldrafirring sem ein tegund tálmunar á umgengni - Kynning á nýrri M. L. ritgerð. María Júlía Rúnarsdóttir, lögfræðingur.
- Viðskilnaður barns og foreldris - alvarlegar afleiðingar. Bertrand Lauth, barna- og unglingageðlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítala og aðjúnkt við læknadeild Háskóla Íslands.
- Umgengni við foreldra - sjónarhorn barns. Hrefna Friðriksdóttir, lektor í sifja- og erfðarétti.
- Deilur foreldra um umgengni og/eða forsjá barns. Hvernig tekur stuðnings- og réttarkerfið á Íslandi á deilum foreldra? Stefanía Katrín Karlsdóttir, uppeldis- og kennslufræði, stjórnmálafræðingur.
- Börn sem fórnarlömb skilnaðar. Reynsla mín af börnum sem hafa verið notuð sem vopn í baráttu foreldra eftir skilnað og í skilnaðarferli. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur.
- Ráðstefnustjóri. Davíð Þór Jónsson Útvarpsmaður og guðrfræðinemi.
Allir velkomnir!
Til baka


