Fréttir
25.01.2010 | Á döfinni
Málstofa um barnavernd 22. mars
Mánudaginn 22. mars nk. verður málstofa á vegum Barnaverndarstofu, Barnaverndar Reykjavíkur og félagsráðgjafadeildar Háskóla Íslands (HÍ). María Kristjánsdóttir félagmálastjóri fjallar um barnavernd og fjölmiðla út frá sjónarhorni barnaverndarstarfsmanna. Að lokinni málstofunni eru áætlaðar hópumræður um efnið til kl. 14:00
Málstofan er haldin í fundarsal Barnaverndarstofu, Borgartúni 21 kl. 12:15-13:15.



