Fréttir
12.01.2010 | Á döfinni
Foreldrasamstarf á framhaldsskólastigi
Samkvæmt nýjum framhaldsskólalögum er kveðið á um að í öllum framhaldsskólum skuli starfa foreldraráð. Þess vegna hafa menntamálaráðuneytið og Heimili og skóli - landssamtök foreldra ákveðið að efna til fundar með öllum stjórnum foreldraráða í framhaldsskólum landsins, náms- og starfsráðgjöfum og forvarnafulltrúum. Fundurinn verður haldinn 29. janúar næstkomandi kl. 13:00 í menntamálaráðuneytinu. Sérstakur gestur fundarins verður Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, auk þess sem fulltrúar ýmissa hagsmunaðila munu flytja erindi, svo sem náms- og starfsráðgjafi, forvarnarfulltrúi, fulltrúi nemenda, fulltrúi foreldra og skólameistari.
Vonast er til að með þessum fundi takist að styrkja og efla foreldraráðin í starfi.
Fjarfundabúnaður verður á staðnum og eru þeir sem vilja nýta sér þann möguleika beðnir um að hafa samband með því að senda póst á: johanna.maria.eyjolfsdottir@mrn.stjr.is
Dagskrá fundarins má nálgast hér.
Kær kveðja,
Jóhanna María Eyjólfsdóttir verkefnisstjóri í menntamálaráðuneyti og
Björk Einisdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.


