Fréttir
19.10.2009 | Fréttir
Vika 43 - Kannabis, afleiðingar og umfang
Vika 43 - Vímuvarnarvika stendur nú yfir og er kannabisneysla ungs fólks þar í brennidepli.
Samstarfsráði um forvarnir, SAMFO er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns. Í því skyni er árlega efnt til vímuvarnaviku meðal annars með það að markmiði að vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum sem beinast að börnum og unglingum. Verkefnið ber nú yfirskriftina Vika 43 og stendur að þessu sinni yfir dagana frá 18. október til 25. október.
Vel upplýstir foreldrar eru góð forvörn og mikilvægt er að foreldrar eigi gott samstarf um vímuvarnir sín á milli og við skóla. Foreldrar kannabisneytenda hafa lýst þeirri reynslu sinni að hafa grandalausir sofnað á verðinum og ekki þekkt þau einkenni sem koma fram við upphaf kannabisneyslu hjá ungu fólki. Því er brýnt að efla fræðslu til foreldra um einkenni neyslunnar, umfang og afleiðingar - sérstaklega í ljósi þess að kannabisneysla ungs fólks hefur aukist.
Sjónum manna er nú í Viku 43 beint að kannabisneyslu ungs fólks og foreldrar hvattir til að vera vel á verði gagnvart þeim vágesti sem fíkniefni eru. Íslenskar kannanir sýna að eftirlit foreldra, stuðningur þeirra, og tengsl við aðra foreldra og vini barna þeirra dregur úr líkum á vímuefnaneyslu. Efnt hefur verið til morgunverðarfundar í samstarfi við Náum áttum hópinn og ber fundurinn yfirskriftina: Kannabis umfang og afleiðingar. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að mæta á fundinn sem haldinn verður þriðjudaginn 20. október kl. 08.15 – 10 á Grand Hóteli. Dagsskrá er að finna hér og undir „Á döfinni” hér á síðunni.
Heimil og skóli – landssamtök foreldra, miða alla starfsemi sína við að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu. Foreldrar látum málið til okkar taka.
Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra.


