Fréttir

09.09.2009 | Foreldraverðlaun 2009

Dugnaðarforksverðlaunin 2009 - viðtal

Björg Þorvaldsdóttir, deildarstjóri sérkennslu við Nesskóla á Neskaupsstað, hlaut á dögunum Dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla. Hér er að finna viðtal sem tekið var við Björgu.

 

Sjaldan mikilvægara að sérkennslu sé sinnt og hún ekki skorin niður í sparnaðaraðgerðum sveitarfélaga

Sérkennari við Nesskóla ,,Dugnaðarforkur” Heimilis og skóla


Landssamtökin Heimili og skóli veita árlega verðlaun til þeirra sem þykja hafa sýnt afburðagott starf í íslenska skólasamfélaginu. Björg Þorvaldsdóttir, deildarstjóri sérkennslu við Nesskóla í Neskaupstað, hlaut á dögunum ein þriggja verðlauna samtakanna, Dugnaðarforksverðlaunin 2009.
Það var Foreldrafélag Nesskóla sem tilnefndi Björgu til foreldraverðlaunanna. Anna Margrét Sigurðardóttir, formaður foreldrafélagsins, segir Björgu einstakan kennara, hún sé lyftistöng fyrir skólalíf á Austurlandi og aldrei hafi sérkennslan verið jafn  mikilvæg og nú á tlmum niðurskurðar. Helga M. Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla, segir mikilvægt að skólastarfi á Austurlandi sé sýnd mun meiri athygli en verið hefur og enn betur hlúð að starfinu. Skólasamfélagið sé vel virkt á landsvísu en minna hafi heyrst frá Austurlandi í þeim efnum en efni standi til.

Brú milli skóla og foreldra

Í tilnefningu Foreldrafélags Nesskóla segir að Björg stýri sérkennslu við Nesskóla af einstakri alúð og athygli hafi vakið hversu yfirgripsmiklu starfi hún sinni. Starf hennar sé einstaklega faglegt og hún hafi stuðlað að árangursríku samstarfi milli foreldra og kennara Nesskóla. Gripið sé inn í kennslu þeirra nemenda sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda strax við upphaf skólagöngu en ekki er beðið eftir því að einstaklingar fái greiningu. Björg þekki vel til sérstöðu allra nemenda Nesskóla sem eru af erlendu bergi brotnir og hafa Íslensku ekki sem sitt fyrsta tungumál.
Í upphafi hvers skólaárs fer Björg vandlega yfir allar sérþarfir nemenda þannig að nýir kennarar eru settir inn í sérþarfir hvers nemenda t.d. hvað varðar lesblindu, sérþarfir til próftöku og þarfir nemenda með ýmsar raskanir. Þetta hefur mikla þýðingu og því er upplýsingaflæði tryggt um sérþarfir hvers einstaklings sem er ómetanlegt og getur komið í veg fyrir óþarfa árekstra og samskiptaerfiðleika. Björg myndar með þessu í raun brú milli heimila og þeirra sem vinna með viðkomandi einstaklinga.  Hún hefur lagt mikla áherslu á lestrarkennslu á yngsta stiginu, tekið þátt í þróunarverkefni í lestrarkennslu við Nesskóla og staðið að reglulegu lestrarátaki á yngsta-  og miðstigi skólans. Foreldrar taka nær undantekningalaust þátt í lestrarátaki barna sinna sem er enn eitt dæmið um það hvernig hún hvetur til jákvæðs samstarfs við heimilin.

Grunnskólar njóta góðs af

Björg hefur haft frumkvæði að og hefur stýrt um árabil skólafærninámskeiði sem haldið hefur verið fyrir foreldra yngstu barna grunnskólans á hverju hausti. Á námskeiðinu hefur foreldrum verið kynnt sú starfsemi sem fer fram í skólanum, þau sérþjónustuúrræði sem í boði eru og farið er vel í  lestrarkennsluaðferðir sem notaður eru auk annarra kennsluaðferða. Í nýrri fræðslu og frístundastefnu Fjarðabyggðar, sem kynnt var nú í maí, kemur fram að taka á upp skólafærninámskeið í öllum grunnskólum Fjarðabyggðar frá og með næsta hausti. Frumkvöðlastarf Bjargar er þarna að nýtast öllum grunnskólum Fjarðabyggðar til góða.
Foreldrafélag Nesskóla segir Björgu einstaklega vel að verðlaununum komna og sé hún í raun ómetanlegur milliliður á milli foreldra og nemenda annars vegar og hins vegar þeirra úrræða sem skólakerfið hefur upp á að bjóða.  Hún hafi margoft sýnt það að hún er tilbúin til þess að leggja lykkju á leið sína ef það getur orðið skjólstæðingum hennar til framdráttar.


Hér er grunnurinn

,,Þetta er gríðarmikil viðurkenning á starfi mínu. Ég reyni að brúa bilið milli skólans og foreldranna og taka mið af nemandanum þannig að allir séu sáttir,” segir Björg Þorvaldsdóttir. Björg hefur kennt við Nesskóla í 20 ár og síðustu 6 árin sem sérkennari. Þá setti hún sér að markmiði að koma á jákvæðari samskiptum skólans og foreldra. ,,Viðurkenning Heimilis og skóla færir mér heim sanninn um að ég er á réttri leið og það þykir mér afar vænt um. Stundum hefur kollegum mínum þótt ég ganga of langt til að mæta þörfum nemenda og foreldra. Ég hef fengið góðar kveðjur úr íslensku skólasamfélagi vegna viðurkenningarinnar svo þetta virðist vekja athygli. En nú er kreppa í landinu og við vitum að þegar kreppir að er einmitt þessi liður helst skorinn niður. Því þarf að opna augu allra fyrir mikilvægi sérkennslunnar. Þetta er vinna að sjálfsmynd barnanna, sem mótast strax í grunnskóla. Fái barn ekki réttan stuðning strax í skóla verður sjálfsmynd þess fótum troðin og erfitt að byggja hana upp síðar. Hér er grunnurinn.”
Nesskóli er fyrsti skólinn á Austurlandi sem hlýtur slíka viðurkenningu Heimilis og skóla. Björg segir formann foreldrafélags skólans hafa lyft grettistaki í vetur í að efla tengsl skóla  og heimila. ,,Almennt séð virðist þetta vera þannig að skólarnir haldi oft að foreldrarnir ætli hreinlega að yfirtaka skólana og svo á hinn bóginn þora foreldrar ekki inn í skólana því þeir halda að þeir megi ekki koma þangað. Nauðsynlegt er  að koma jöfnuði á þetta,” segir Björg.
Um það hvar helst kreppir að í úrlausnum, segir hún einna helst vanta fleiri sálfræðinga. Skólaskrifstofa Austurlands vinni gríðargott starf, en sálfræðingur þar sé mest megnis í greiningum og því vanti fleiri meðferðaraðila. Í Nesskóla var þó í vetur músíkþerapisti sem skipti afar miklu máli. ,,Tilfinningaerfiðleikar hjá börnum sem spretta oft úr því að við höfum ekki tíma fyrir þau, eru áberandi. Kennarar lenda líka upp við vegg vegna hegðunarerfiðleika nemenda og þurfa stuðning. Það gleymist. Þetta er orðið svo erfitt starf og alltaf minni og minni tími sem kennarar hafa til að kenna námsefnið vegna annarra úrlausnarefna. Þeir eru svo mikið í uppeldishlutverkinu.”


--------------------------

Mennt er máttur: Björk Einisdóttir framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, Anna Margrét Sigurðardóttir formaður foreldrafélags Nesskóla, Björg Þorvaldsdóttir deildarstjóri sérkennslu í Nesskóla og Sjöfn Þórðardóttir formaður Heimilis og skóla.

Til baka