Fréttir

12.06.2009 | Foreldraverðlaun 2009

Grunnskólinn á Blönduósi og Fræðsluskrifstofa A- Húnavatnssýslu hljóta Foreldraverðlaunin 2009

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 14. þann 4. júní, við athöfn sem hófst kl. 16:00 í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin.

Handhafar Foreldraverðlaunanna 2009 eru eftirtaldir: Grunnskólinn á Blönduósi og Fræðsluskrifstofa A- Húnavatnssýslu hljóta Foreldraverðlaunin 2009 fyrir verkefnið Tökum saman höndum. Markmið verkefnisins er að bæta líðan og námsárangur nemenda í unglingadeild grunnskólans á Blönduósi.

Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun.

Hvatningarverðlaun: Samstarfsverkefni Kópavogsskóla og Gjábakka. Markmið verkefnis er að brúa bilið á milli kynslóða.

Dugnaðarforkur: Björg Þorvaldsdóttir deildarstjóri sérkennslu við Nesskóla Neskaupsstað.

38 tilnefningar bárust til verðlaunanna að þessu sinni og voru 34 verkefni tilnefnd. Hægt er að skoða allar tilnefningarnar hér.

Til baka