Fréttir

05.03.2009 | Foreldraverðlaun 2008

Starfsfólk leikskólans Tjarnarsels í Reykjanesbæ hlýtur Foreldraverðlaunin 2008

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra voru afhent í 13. sinn 15. maí, við athöfn sem hófst kl. 16:00 í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin, í forföllum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.

Starfsfólk Tjarnarsels hlýtur Foreldraverðlaunin 2008 fyrir verkefnið Lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í leikskólanum Tjarnarseli.
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd skólans

 Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun.

 Hvatningarverðlaun:
Grunnskóli Siglufjarðar fyrir verkefnið Átak gegn einelti.  Þetta verkefni hlaut 3 tilnefningar og hefur því vakið óskipta athygli í samfélaginu á Siglufirði.

Foreldrafélag Svalbarðsskóla fyrir starfsemi foreldrafélags Svalbarðsskóla 
 
Dugnaðarforkur:
Ingibjörg Baldursdóttir og Svanhvít Guðbjartsdóttir fyrir verkefnið Þjóðardagur –Börnin okkar í Flataskóla

Heimili og skóli óskar þeim til hamingju sem og öllum þeim sem hlutu tilnefningar til verðlaunanna

Hægt er að skoða allar tilnefningarnar hér:

Til baka