Fréttir
05.03.2009 | Foreldraverðlaun 2008
Tilnefningar til foreldraverðlaunanna 2008
Alls bárust 35 tilnefningar til foreldraverðlaunanna fyrir árið 2008
Bækling um tilnefningarnar til foreldraverðlaunanna 2008 er hægt að nálgast hér.
Leitað var eftir eftir tilnefningum um einstaklinga, félög, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða skóla á leik,- grunn- og framhaldsskólastigi sem stuðlað hafa að:
- árangursríkum leiðum við að efla samstarf foreldra og kennara
- jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla
- því að brúa bilið milli foreldra og nemenda
Sérstök dómnefnd sem í sitja fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, KHÍ, svæðasamtökum foreldra, fræðsluskrifstofum og fulltrúum frá Heimili og skóla mun velja verkefni til verðlauna sem uppfylla eitt eða fleiri af ofangreindum viðmiðum. Enn fremur er skilyrði að verkefnið:
- hafi skýran tilgang
- hafi fest rætur og sýni fram á varanleika
- að foreldrar komi með einhverjum hætti að verkefninu


