Fréttir

05.03.2009 | Foreldraverðlaun 2009

Heimili og skóli óskar eftir tilnefningum til foreldraverðlauna

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra verða veitt 4. júní 2009 í 14. sinn. Að auki verða veitt hvatningarverðlaun til einstaklinga og stofnana ef tilefni þykir til.

Leitað er eftir tilnefningum um einstaklinga, félög, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða skóla á leik,- grunn- og framhaldsskólastigi  sem stuðlað hafa að:
-   árangursríkum leiðum við að efla samstarf foreldra og kennara
-   jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla
-   því að brúa bilið milli foreldra og nemenda
-   öflugu samstarfi innan nærsamfélagsins um velferð barna

Sérstök dómnefnd  sem í sitja fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, KHÍ, svæðasamtökum foreldra, fræðsluskrifstofum og fulltrúum frá stjórn Heimili og skóla mun velja verkefni til verðlauna sem uppfylla eitt eða fleiri af ofangreindum viðmiðum. Enn fremur er skilyrði að verkefnið:
- hafi skýran tilgang
- hafi fest rætur og sýni fram á varanleika
- að foreldrar komi með einhverjum hætti að verkefninu 
Síðasti skiladagur tilnefninga var 8. maí 2009.
Í fyrra hlaut leikskólinn Tjarnarsel í Reykjanesbæ Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir verkefni sem byggir á því að skipuleggja lestrarhvetjandi umhverfi allt frá því að nemendur hefja leikskólagönguna.

 

Til baka