Fréttir

31.08.2008 | Fréttir

Skáksveit Rimaskóla varð Norðurlandameistari grunnskólasveita

Sveitin vann öruggan 4-0 sigur á danskri sveit í lokaumferðinni

Skáksveit Rimaskóla varð Norðurlandameistari grunnskólasveita. Sveitin vann öruggan 4-0 sigur á danskri sveit í lokaumferðinni. Hjörvar Steinn Grétarsson, Hörður Aron Hauksson, Sigríður Björg Helgadóttir og Jón Trausti Harðarson unnu sínar skákir. Fyrir umferðina hafði sveitin 1,5 vinnings forskot á norska sveit og sigurinn nokkuð öruggur!

Sveit Rimaskóla skipa:

Hjörvar Steinn Grétarsson (2299) 4½ v. af5
Hörður Aron Hauksson (1728) 3 v. af 5 
Sigríður Björg Helgadóttir (1595) 4 v. af 5 
Dagur Ragnarsson 1 v. af 2 
Jón Trausti Harðarson 2 v. af 3  

Liðsstjóri er Davíð Kjartansson en fararstjóri er Helgi Árnason skólastjóri.

Til baka