Fréttir

27.02.2008 | Foreldraverðlaun 2007

Tilnefningar til foreldraverðlaunanna

Alls bárust 35 tilnefningar til foreldraverðlaunanna þetta árið

Bækling um tilnefningarnar til foreldraverðlaunanna 2008 er hægt að nálgast hér.

Leitað var eftir eftir tilnefningum um einstaklinga, félög, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða skóla á leik,- grunn- og framhaldsskólastigi  sem stuðlað hafa að:
-   árangursríkum leiðum við að efla samstarf foreldra og kennara
-   jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla
-   því að brúa bilið milli foreldra og nemenda

Sérstök dómnefnd  sem í sitja fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, KHÍ, svæðasamtökum foreldra, fræðsluskrifstofum og fulltrúum frá Heimili og skóla mun velja verkefni til verðlauna sem uppfylla eitt eða fleiri af ofangreindum viðmiðum. Enn fremur er skilyrði að verkefnið:
- hafi skýran tilgang
- hafi fest rætur og sýni fram á varanleika
- að foreldrar komi með einhverjum hætti að verkefninu



Til baka