Fréttir
27.12.2007 | Fyrir foreldra
Upphaf skólagöngu - punktar
ER BARNIÐ ÞITT AÐ BYRJA Í GRUNNSKÓLA? Atriði sem gott er að hafa í huga: Barnið sjálft Upphaf skólagöngu er mikil tímamót fyrir þig og barnið Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga
ER BARNIÐ ÞITT AÐ BYRJA Í GRUNNSKÓLA?
Atriði sem gott er að hafa í huga:
Barnið sjálft
- Upphaf skólagöngu er mikil tímamót fyrir þig og barnið
- Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga
- Gættu þess að hafa nægan tíma fyrir barnið á degi hverjum meðan það er að aðlagast skólanum
- Mundu rétt þinn til 13 vikna launalauss foreldraorlofs frá vinnu e.t.v. er þetta rétti tíminn til að nýta sér það?
- Veldu skólatösku við hæfi sem fer vel með bæði barnið og töskurnar. Hafðu barnið með, það þarf að máta skólatöskur eins og föt
- Aðgættu að barnið sé ekki að bera of þunga tösku og að þyngstu bækurnar séu næst bakinu
- Röltu með barninu um skólalóðina og helst um skólann, utan annatíma
- Sendu barnið alltaf með nægt og hollt nesti í skólann
- Merktu allar eigur barnsins, skóladót og allan fatnað þ.m.t. íþróttafatnað
- Vertu búin að kaupa inn nauðsynlegt skóladót og merkja áður en að skólinn hefst. Flestir skólar birta innkaupalista á heimasíðum sínum
Samstarf
- Nú hefst 10 ára samstarf við skólann um menntun og velferð barnsins þíns
- Þú berð höfuðábyrgð á menntun barnsins skv. aðalnámskrá grunnskóla
- Mikilvægt er að mæta á skólafærninámskeið og fundi fyrir foreldra 1.bekkinga
- Kynntu þér og taktu þátt í starfi foreldrafélagsins og bekkjarstarfinu, t.d. með því að gerast bekkjarfulltrúi í bekk barnsins þíns
- Vertu í sambandi við kennarann, best er að þið styðjið hvert annað, því markmiðið er sameiginlegt: Velferð barnsins þíns!
- Hafðu í huga hvaða upplýsingar þú vilt að grunnskólinn fái um stöðu barnsins, s.s. heilsufar og líðan. Foreldrar ráða því hvaða upplýsingar fylgja barninu frá leikskóla til grunnskóla
- Mikilvægt er að haft sé samband við kennara og hann látinn vita ef e-ð gerist í lífi barnsins sem getur haft áhrif á líðan þess, t.d. alvarleg veikindi í fjölskyldunni, skilnaður foreldra, andlát í fjölskyldunni o.s.frv.
- Kynntu þér hlutverk og starfsemi foreldraráðs og hverjir sitja í því
Skólinn
- Finndu bestu leiðina í skólann, farðu hana nokkrum sinnum með barninu og leiðbeindu því. Er gangbrautarvarsla?
- Mikilvægt er að styðja við heimanám barnsins og að láta það lesa á hverjum degi
- Gættu þess að upplýsingar um nöfn, heimilisföng, netföng og símanúmer aðstandenda séu rétt. Betra er að fleiri séu skráðir en færri þannig að alltaf sé hægt að ná í aðstandana ef eitthvað kemur upp á
- Kynntu þér hvernig staðið er að nestis- og mötuneytismálum. Gilda reglur um það hvað má koma með í nesti?
- Kynntu þér hvernig staðið er að gæslu í frímínútum og hve margir árgangar eru saman í frímínútum
- Kynntu þér hvernig salernisaðstaðan er og vertu viss um að barnið viti hvar salernin eru
- Athugaðu hvenær skólabyggingin opnar á morgnana
- Kynntu þér möguleika á dægradvöl eða tómstundum í þínum skóla og hverfinu að loknum skóladegi
- Kynntu þér vel heimasíðu skólans og skólanámskrá skólans. Í skólanámskrá eru ýmsar hagnýtar upplýsingar um skipulag skólans sem og námsáætlanir. Þar eru einnig upplýsingar um stoðþjónustau skólans og hvaða verklagsreglur gilda t.d. í sambandi við aga, einelti, áföll, forvarnir, slys, veikindi o.fl. Skólanámskrá á að vera aðgengileg á heimasíðunni



