Fréttir

27.12.2007 | Fyrir foreldra

Foreldrarölt eða foreldrabrölt?

Sl. föstudagkvöld tókum ég og maðurinn minn þátt í foreldrarölti í Áslandshverfi ásamt fleiri foreldrum í bekk dóttur okkar. Foreldaröltið er starfrækt hvert föstudagskvöld í flestum ef ekki öllum hverfum bæjarins. Það er skipulagt af foreldrafélagi hvers skóla en gert er ráð fyrir að foreldrar barna í öllum árgöngum rölti

Sl. föstudagkvöld tókum ég og maðurinn minn þátt í foreldrarölti í Áslandshverfi ásamt fleiri foreldrum í bekk dóttur okkar. Foreldaröltið er starfrækt hvert föstudagskvöld í flestum ef ekki öllum hverfum bæjarins. Það er skipulagt af foreldrafélagi hvers skóla en gert er ráð fyrir að foreldrar barna í öllum árgöngum rölti einu sinni til tvisvar á vetri.
 
Röltið hefur margs konar tilgang. Í fyrsta lagið veitir það foreldrum og börnum ákveðið öryggi. Ef ekki væri fyrir röltarana hefðu unglingarnir okkar meiri möguleika á að hanga úti og reyna á þau mörk að skila sér ekki heim til sín eftir að útivistartíma lýkur klukkan tíu. Ég er sannfærð um að það veitti unglingunum sem voru á leið heim úr félagsmiðstöðinni aðhald að sjá foreldraröltara í startholunum, tilbúna að fara út í kuldann og brölta á ísilögðum götum hverfisins. Bæjaryfirvöld mættu reyndar gera betur í að hreinsa og moka götur og göngustíga þegar svona viðrar.
 
Foreldraröltið býr til samkennd og hvetur íbúa innan hverfis til árvekni. Það var einstaklega ánægjulegt að finna hversu vakandi íbúar í Áslandshverfinu voru gagnvart eftirlitslausum partýum en þeir komu rölturum meðal annars til aðstoðar með því að láta vita af einu slíku. Það var líka greinilegt að íbúarnir þekktu vel leiðir röltaranna og virtust vita hverjir væru á ferð þrammandi eftir sleipum götunum.
 
Foreldraröltið hefur líka forvarnargildi. Börn og unglingar í Áslandinu voru virkilega til fyrirmyndar þetta kvöld. Af auðum götunum að dæma var ekki var annað að skynja en að þau væru flest heima hjá sér, vonandi í hlýjum faðmi fjölskyldunnar. Samstaða foreldra skiptir miklu máli í að halda útivistartíma og hvert foreldri ber ábyrgð á því að sitt barn skili sér heim. Jákvæðni og hrós skiptir líka máli. Ef við viljum að börnin okkar virði þau mörk sem við setjum þeim megum við ekki gleyma því að hrósa þeim fyrir að koma heim á réttum tíma.
 
Foreldar og íbúar, kynnið ykkur foreldraröltið í ykkar hverfi. Fyrirkomulag röltsins og sími röltaranna ætti að vera aðgengilegt á heimasíðum skólans í hverfinu en annars er hægt að leita sér upplýsinga á skrifstofu skóla eða hjá formanni foreldrafélags.
 
María Kristín er foreldri barns í Áslandsskóla og formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.

Til baka