Fréttir

27.12.2007 | Fyrir foreldra

Útivistartími

Úr barnaverndarlögum: Útivistartími barna. ° Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau

Úr barnaverndarlögum:

Útivistartími barna.
° Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum.
Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
° Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.

Skyldur foreldra og forráðamanna.
° Foreldrar eða forráðamenn barna skulu sjá til þess að börn hlíti ákvæðum þessa kafla um útivistartíma og virði aldursmörk og annað í því sambandi. Þeim ber jafnframt, eftir því sem í þeirra valdi er, að vernda börn gegn ofbeldis- og klámefni eða öðru slíku efni, m.a. með því að koma í veg fyrir aðgang þeirra að því.

Til baka