Fréttir
27.12.2007 | Fyrir foreldra
Við upphaf skólagöngu
ER BARNIÐ ÞITT AÐ BYRJA Í GRUNNSKÓLA? Punktar til að hafa í huga: Upphaf skólagöngu er mikil tímamót fyrir þig og barnið Nú hefst 10 ára samstarf við skólann um menntun og velferð barnsins þíns Þú berð höfuðábyrgð
ER BARNIÐ ÞITT AÐ BYRJA Í GRUNNSKÓLA?
Punktar til að hafa í huga:
Upphaf skólagöngu er mikil tímamót fyrir þig og barnið
- Nú hefst 10 ára samstarf við skólann um menntun og velferð barnsins þíns
- Þú berð höfuðábyrgð á menntun þess skv. aðalnámskrá grunnskóla
- Mikilvægt er að mæta á námskeið og fundi fyrir foreldra 1.bekkinga
- Röltu með barninu um skólalóðina og helst um skólann, utan annatíma
- Finndu bestu leiðina í skólann, farðu hana nokkrum sinnum með barninu og leiðbeindu því
- Veldu skólatösku við hæfi sem fer vel með bæði barnið og töskurnar. Hafðu barnið með, það þarf að máta skólatöskur eins og föt
- Aðgættu að barnið sé ekki að bera of þunga tösku og að þyngstu bækurnar séu næst bakinu
- Sendu barnið alltaf með nægt og hollt nesti í skólann
- Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga
- Gættu þess að hafa nægan tíma fyrir barnið á degi hverjum meðan það er að aðlagast skólanum
- Mundu rétt þinn til 13 vikna launalauss foreldraorlofs frá vinnu e.t.v. er þetta rétti tíminn til að nýta sér það?
- Vertu í sambandi við kennarann, best er að þið styðjið hvert annað, því markmiðið er sameiginlegt: Velferð barnsins þíns!
- Mikilvægt er að styðja við heimanám barnsins og að láta það lesa á hverjum degi
Til baka