Fréttir

27.12.2007 | Fyrir foreldra

Farsæl skólabyrjun

Að takast á við breytingar er hluti af lífi og starfi allra einstaklinga og nú bíða mörg 5 og 6 ára börn eftir að byrja í grunnskóla. Þau hafa ekki farið varhluta af því að mikið stendur til og heyra umræður foreldra og annarra um ýmislegt

Að takast á við breytingar er hluti af lífi og starfi allra einstaklinga og nú bíða mörg 5 og 6 ára börn eftir að byrja í grunnskóla. Þau hafa ekki farið varhluta af því að mikið stendur til og heyra umræður foreldra og annarra um ýmislegt sem tengist skólagöngu þeirra. Er mín/minn að byrja í skóla? Þau eru allt í einu orðin svo stór og hafa útskrifast af leikskóla, sem margir hafa gert með mikilli viðhöfn af leikskólans hálfu. Börnin hafa fengið skólatösku alls konar skóladót, skólaföt og mörg hver hafa fengið skrifborð og herbergið endurnýjað svo þau hafi allt til alls fyrir heimanámið og skólagönguna. Barnið hefur fengið póst og heimsendingar frá stórfyrirtækjum eins og nestisbox, endurskinsmerki  eða annað er tengist skólagöngunni. Þau eru  orðin hluti af markhópi fyrirtækja.

Sum börn eiga erfiðara með að sofna á kvöldin og foreldrar finna að börnin hafa væntingar, eru jafnvel spennt, sum áhugalítil en önnur kvíðin. Margir foreldrar finna líka fyrir kvíða sem tengist skólagöngu barnsins. Hvernig tekur skólinn á móti okkur?  Hvernig verður að kveðja barnið við skólalóðina, hvenær opnar skólinn, tekur einhver á móti því, hvað með nestið, klósettferðirnar, heimanámið, samskipti við bekkjarfélaga og kennara?  Mun barnið fá kennslu við hæfi, verður boðið upp á stoðþjónustu, eignast það nýja vini, hvaða upplýsingar ættu að  fylgja barninu mínu í skólann og  hvaða aðstandendur eiga að vera skráðir sé barnið í stjúpfjölskyldu? Nauðsynlegt er að foreldrar leiti upplýsinga til að fá svör við þessum spurningum t.d. á heimasíðum skóla. Hjá skólariturum er hægt að leita upplýsinga um foreldraráð og  foreldrafélög og  hvaðeina er tengist skólagöngu barnsins.

Handleiðsla foreldra er mjög mikilvæg alla skólagönguna og verður seint ofmetin sérstaklega í skólabyrjun. Skólanum ber að rækja hlutverk sitt í samvinnu við heimilin og foreldrum ber að styðja við barn sitt og skapa því sómasamlegt lífsviðurværi  og námsumhverfi. Það tekur til allra þátta í lífi barnsins en líðan barnsins er lykilatriði. Barni sem líður ekki vel er síður móttækilegt fyrir námi og því sem skólinn hefur fram að færa. Rannsóknir sína að námsárangur barna ræðst að verulegu leyti af þáttum sem liggja utan skólans sjálfs m.a. stuðningi foreldra við heimanám.

Vellíðan og velgengni barna í námi byggist öðru fremur á góðum samskiptum foreldra við skólann og gagnkvæmu trausti þessara aðila. Jákvætt viðmót og  gagnkvæm upplýsingamiðlun er eitt af því sem foreldrar þurfa að stuðla að. Foreldrar þekkja barnið sitt betur en nokkur annar og barnið verður að geta treyst á foreldra sína á þessum tímamótum í lífi sínu. Öflugt foreldrasamstarf styrkir foreldra og er frábær leið til að styðja við barnið. Munum að bros,  hvatning og hrós skila bestum árangri. Vel upplýstir og glaðir foreldrar eru góð forvörn.

Til baka