Fréttir
27.12.2007 | Foreldraverðlaun 2007
Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi fær Foreldraverðlaunin 2007
Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi hlýtur Foreldraverðlaunin að þessu sinni fyrir samræmingu skóladags og æfingatíma í samvinnu við bæjaryfirvöld og Grunnskóla Seltjarnarness. Formaður Gróttu, Bjarni Torfi Álfþórsson veitti verðlaunum viðtöku fyrir hönd samfélagsins á Seltjarnarnesi . Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og
Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi hlýtur Foreldraverðlaunin að þessu sinni fyrir samræmingu skóladags og æfingatíma í samvinnu við bæjaryfirvöld og Grunnskóla Seltjarnarness. Formaður Gróttu, Bjarni Torfi Álfþórsson veitti verðlaunum viðtöku fyrir hönd samfélagsins á Seltjarnarnesi .
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun.
Hvatningarverðlaun hlýtur Reykjanesbær fyrir að styðja við bakið á foreldrastarfi með veitingu styrks til ráðningu verkefnistjóra FFGÍR, (Foreldraráð og foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ).
Hvatningarverðlaun hlýtur Guðlaug Snorradóttir og starfsfólk Nýbúadeildar við Hjallaskóla í Kópavogi, fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa.
Dugnaðarforkaverlaunin hlýtur Hlynur Snorrason fyrir forvarnarverkefni í Grunnskólum Ísafjarðarbæjar.
31 tilnefningar bárust til verðlaunanna að þessu sinni og voru 24 verkefni tilnefnd.
Foreldraverðlaunin hafa unnið sér fastan sess í samfélaginu og vekja athygli á þeim mörgu verkefnum sem efla starf grunnskólanna og öflugt og jákvætt samstarf heimila, skóla sveitarfélaga og samfélagsins alls. Aðalmarkmiðið með veitingu Foreldraverðlaunanna er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum í grunnskólum landsins. Við veitingu verðlaunanna er sérstaklega litið til verkefna sem hafa eflt samstarf foreldra og skólastarfsmanna og komið á uppbyggjandi hefðum í samstarfi þessara aðila. Í ár var sérstaklega horft til sveitarfélaga og félagasamtaka sem styðja markvisst við foreldrasamtök og foreldra í sínu sveitarfélagi. Það er í fyrsta sinn sem það er gert.
Tilnefningar til Foreldraverðlauna 2007
Skólahljómsveit Seltjarnarness - Kári Húnfjörð Einarsson
Málþing Heiðarskóla Heiðarskóli
Samræming skóladags og æfingatíma Íþróttafélagið Grótta
Starfsemi Foreldraráðs Kópavogsskóla Foreldraráð skólans
Unnið að lýðræði í skólastarfi - Helga K Hjálmarsdóttir og Nilsina Larsen
Alþjóðadagur Fellaskóla Foreldrafélag Fellaskóla
Fjölmenningarhátíð Flataskóla Ingibjörg Baldursdóttir og Kári Haraldsson
Bækur og móðurmál Emilia Mlynska
Samstarf heimila og skóla Oddeyrarskóli og Ingibjörg Auðunsdóttir
Barna- og unglingastarf í Seltjarnarneskirkju - Sigurður G Helgason og
Arna Gétarsdóttir
Travel Buddy Jenný B Rúnarsdóttir
Engill úr Paradís - Hrönn Ríkharðsdóttir og Sigurður Arnar Sigurðsson
Hjólarí Snælandsskóla Unnur Sólrún Bragadóttir
Forvarnarverkefni Grunnskóla Ísafjarðarbæjar Hlynur Snorrason
Stuðningur bæjaryfirvalda við foreldrasamfélagið Reykjanesbær
Bekkjarfulltrúinn öflugi Helga Bryndís Jónsdóttir
Heimanámskerfi NemaNet Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
Heimasíða Hofsstaðaskóla Elísabet Benónýsdóttir
Morgunstund Áslandsskóla Áslandsskóli
Tíu ráð handa foreldrum Foreldrafélag Flataskóla
Forvarnarleiðtogi Kópavogs Anna Elísabet Ólafsdóttir
Nýbúadeild við Hjallaskóla Kópavogi Guðlaug Snorradóttir




