Foreldraverðlaun 2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í sextánda sinn 24. maí kl. 15:00 í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin en þetta árið bárust 42 tilnefningar (sjá bækling hér).
Vinaverkefnið í Skagafirði hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011. Verkefnið er samstarfsverkefni leik-, grunn- og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði.
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun.
Hvatningarverðlaun 2011 hlaut Foreldrafélagið Örkin hans Nóa, leikskólanum Nóaborg, fyrir framúrskarandi gott foreldrasamstarf.
Dugnaðarforkaverðlaun 2011 voru veitt til Þórólfs Sigjónssonar og Guðnýjar Vésteinsdóttur, foreldra barna í Hallormsstaðaskóla, fyrir sjálfboðaliðastarf á tímum fjárskorts, og öfluga og virka þátttöku foreldra í skólastarfinu.
Verðlaunagripir voru hannaðir af Rögnu Ingimundardóttur, leirlistakonu, sem jafnframt gaf samtökunum verðlaunin. Blómastofa Friðfinns gaf blómavendi og blómaskreytingu til Foreldraverðlaunanna.
Heimili og skóli færa eftirtöldum aðilum sem styrktu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011 bestu þakkir fyrir stuðninginn:
Vodafone
Ragna Ingimundardóttir, leirlistakona
IFS ráðgjöf
IKEA
Ísafoldarprentsmiðja
Blómastofa Friðfinns
Myndir sem teknar voru við athöfnina:




