Hver tilnefnir:

Tilnefningaraðili getur verið einstaklingur eða hópur, félag, stofnun, fyrirtæki, sveitarfélag o.s.frv.

Tilnefnt verkefni/viðfangsefni:

Hér er hægt að tilnefna verkefni/viðfangsefni sem stofnun, sveitarfélag, félag, fyrirtæki, hópur eða einstaklingur stendur fyrir. Tilgreina skal hvert hið tilnefnda verkefni/viðfangsefni er, hverjir standa að baki því og með hvaða hætti verkefnið/viðfangsefnið sé útfært.

Hver framkvæmir/útfærir:

Hér skal koma fram hver það sé sem framkvæmi/útfæri verkefnið/viðfangsefnið. Tilnefnandi getur ekki tilnefnt verkefni sem hann er sjálfur ábyrgðaraðili að. 

Tengsl tilnefningaraðila við verkefni/viðfangsefni sem tilnefnt er:

Hér þarf að koma fram hvort og þá hver tengsl tilnefningaraðila eru við það sem tilnefnt er. 

Hvar er verkefnið/viðfangsefnið útfært:


Hér þarf að koma fram staður (nafn, aðsetur, sveitarfélag) þar sem verkefni/viðfangsefni sem tilnefnt er hefur verið útfært/unnið á. 

Hver eru markmið/tilgangur verkefnisins/viðfangsefnisins?
Tilgangur/markmið verkefnis/viðfangsefnis þurfa að vera skýr. Nánari lýsing getur komið fram í   greinargerð sem fylgir tilnefningunni.

Að hvaða leyti hefur verkefnið fest sig í sessi?

Hér skal taka fram hversu rótgróið verkefnið/viðfangsefnið er, hver sé árangur af verkefninu/viðfangsefninu og hver sé framtíðarsýn á verkefnið/viðfangsefnið.

Hver er aðkoma foreldra að verkefninu?

Hér skal koma fram hvort og þá í hve miklum mæli foreldrar komi að verkefni sem tilnefnt er.

Hvernig hefur verkefnið eflt og stuðlað að jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla?

Hér skulu talin upp jákvæðar hefðir sem verkefnið/viðfangsefnið hefur skapað, í samstarfi heimila og skóla.

Hvernig hefur verkefnið brúað bilið milli foreldra, nemenda og skóla við samfélag?

Hér skal koma fram hvort og  með hvaða hætti verkefnið/viðfangsefnið hafi haft jákvæð áhrif á  sambandið milli foreldra, nemenda og skóla við samfélagið.

Viðhengi:

Hægt er að skila inn greinargerð um verkefnið en það er valfrjálst.

Annað:

Hér getur tilnefnandi, ef hann telur ástæðu til, bætt við einhverju umfram ofangreint.