Algengar spurningar

06. 13 ára unglingur vill halda partý fyrir 6 félaga en ég má ekki vera heima. Á ég að leyfa það?

Snemma fer að bera á því að börn óski eftir að fá að bjóða félögum sínum í afmæli eða teiti af einhverju tagi. Í þessu efni eins og öðru er gott að styðjast við ákveðnar reglur frá upphafi því þá eru minni líkur á að málin þróist í óheppilegan farveg seinna.

Ekki foreldralaus partí
Auðvitað látum við foreldrar ekki úthýsa okkur þótt barnið okkar fái gesti í heimsókn. Ekki rekum við barnið á dyr þegar við fáum gesti? Ef sú venja skapast frá fyrstu tíð að einhver fullorðinn sé á staðnum verður það ekki vandamál á unglingsárunum.

Ekki er rétt að leggja það á barn eða ungling að bera ábyrgð á heimilinu og eignum fjölskyldunnar þegar margir eru saman komnir. Þess vegna þarf einhver fullorðinn að vera til taks.

Óboðnir gestir eiga það til að birtast þar sem gleðskapur er í gangi og þá geta hutirnir iðulega farið úr böndunum. Dæmi eru um miklar skemmdir og jafnvel þjófnað.

Návist fullorðinna veitir unglingunum aðhald t.d. varðandi áfengis- eða fíkniefnaneyslu og reykingar. Það er erfiðara að fikta með slíkt ef einhver fullorðinn er í næsta herbergi.

Í foreldralausum partíum er hægt að hreiðra um sig bak við luktar dyr. Það getur verið erfitt um vik að verjast kynferðislegri áreitni eða nauðgun í heimahúsi þar sem enginn fullorðinn er til staðar.

Ákveðin tímamörk
Það er góð regla að hafa ákveðin tímamörk á slíkum boðum, gjarnan samræmd innan bekkjarins og ekki er verra að þau séu kynnt í fréttabréfi sem sent er til allra foreldra í bekknum.

Samkomulag við nágranna
Það hefur oft gerst að unglingar sem eru einir heima yfir helgi bjóði í teiti án vitundar foreldra sinna. Því er gott að gera samkomulag við nágranna um að þeir liti inn ef hávaði og læti fara að trufla. Það veitir aðhald og kennir unga fólkinu að taka tillit til annarra.
Til baka