Algengar spurningar

05. Hvernig eru reglurnar um útivistartíma?

Virðum lögin!

Útivistarreglur eru bundnar í lög og okkur ber að fara að lögum. Við sendum börnum okkar ýmis ksilaboð ef við hunsum gildandi reglur: "Það er allt í lagi að brjóta lögin, þau eru hvort sem er svo fáránleg."
Viljum við stuðla að slíku?

12 ára og yngri til kl. 20
Börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna og kl. 22 á sumrin.

13 - 16 ára til kl. 22
Unglingar 13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema þeir séu á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Útivistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin.

Sveitarstjórnir geta breytt þessum aldursmörkum og tímasetningum með
sérstakri samþykkt og staðfestingu félagsmálaráðuneytis.


Alls staðar eru reglur
Ef við viljum búa börnin okkar vel undir lífið þá er mikilvægt að þau venjist því frá unga aldri að samfélagið setur þegnum sínum ýmsar reglur.

Unglingar þurfa nægan svefn
Sá sem kemur seint heim fer seint að sofa. Skólinn er vinnustaður barnanna, syfjaðir og þreyttir nemendur afkasta litlu og námsárangur þeirra verður slakari en ella. Unglingur þarf að meðaltali minnst níu stunda svefn.

Hætturnar leynast víða
Sumum finnst þessar útivistarreglur og strangar og telja þær ekki í takt við tímann. Þeir ættu að hugleiða að í nútímasamfélagi stafar unglingum hætta af mörgu. Slys gera ekki boð á undan sér og það er talið álíka auðvelt fyrir unglinga að útvega sé eiturlyf eða áfengi og pizzu. Samræmdar útivistarreglur eru settar til verndar börnum og unglingum.

Foreldrar bera ábyrgðina
Stundum þarf að halda fast um tauminn þótt það veki tímabundnar mótbárur. Við berum ábyrgð á uppeldi og velferð barnanna og reynum að haga uppeldinu þannig að börnin verði ekki fyrir áföllum.

Stöndum saman
Útivistarreglur eru eins og umferðarreglur; því fleiri sem virða þær þeim mun auðveldar ganga hlutirnir fyrir sig. Hugsum til hinna foreldranna áður en við gefum lausan tauminn.

Til baka