Algengar spurningar

03. Hver eru mikilvægustu atriði í uppeldi barna?

Eftirtalin atriði komu fram á fræðslufundi fyrir foreldra barna með umsjónarkennurum í 5. bekk (10 ára nemendur) í skóla einum í Reykjavík, þegar foreldrar unnu saman í litlum hópum við að svara eftirfarandi spurningu:

Hvað skiptir mestu máli að krakkarnir ykkar viti og geti þegar þeir verða fullorðnir?

  • Að þeir geti tjáð sig.
  • Að þeir geti unnið með öðrum.
  • Að þeir geti aflað sér upplýsinga.
  • Að þeir hafi skapandi hugsun.
  • Að þeir kunni að meta muninn á réttu og röngu.
  • Að þeir verði heiðarlegir.
  • Að þeir verði sjálfstæðir einstaklingar.
  • Að þeir geti sýnt frumkvæði.
  • Að þeir hafi náð góðri lífsleikni.
  • Að þeir geti tekið tillit til annarra.
  • Að þeir kunni að velja og hafna.
  • Að þeir verði sjálfsgagnrýnir, á jákvæðan uppbyggjandi hátt.
  • Að þeir verði hamingjusamir.
  • Að þeir verði læsir.

Eigi börnin að tileinka sér þessa færni þurfa foreldrar að sinna uppeldinu vel og leita eftir samstarfi við kennara um ýmsa þætti.

Til baka