Algengar spurningar
02. Hvað er dyslexia og hvað er til ráða?
Dyslexia = Sértæk lesröskun
Fjöldamargir einstaklingar glíma við leserfiðleika og stundum hefur verið talað um lesblindu í því sambandi. Það þykir ekki heppilegt orð og því hefur erlenda hugtakið dyslexia frekar verið notað. Nú er komin tillaga að íslenskri þýðingu yfir þetta hugtak, nefnilega "sértæk lesröskun".
Þessi þýðing er tillaga starfshóps sem skipaður var til að fjalla um leshömlun í grunn- og framhaldsskólum og nýlega skilaði niðurstöðum. Samkvæmt tillögum starfshópsins skulu nemendur með sértæka lesröskun fá lestrarkennslu og lestrarþjálfun og tilhliðrun gerð við fyrirlögn samræmdra könnunarprófa, grunnskólaprófa og stúdentsprófa ef þær auka réttmæti prófanna. Áður skal hafa farið fram þverfaglegt mat sem staðfestir hina sértæku lesröskun.
Úrræði
- Nota mismunandi liti, skipta um liti millli atriða/kafla.
- Kenna námstækni - hvernig á að læra, skipulag skiptir mjög miklu máli. Námsráðgjafar halda námskeiðin.
- Taugasálfræðileg greining bendir á styrkleika. Það þarf stanslaust að draga fram styrkleika barnsins og benda á þá. Á endanum toppa styrkleikarnir veikleikana.
- Hjálpar mikið að nota litaðaar glærur sem lagðar eru yfir textann. Mál og menning selur slíkar glærur á góðu verði. Einnig hægt að fá dýrari útgáfu hjá námsráðgjafa í Iðnskólanum. Börnin þurfa að finna sjálf út hvaða litur hentar þeim. Algengasti liturinn er gulur eða grænn. Oft nota þau 2 liti. Hægt að prófa sig áfram með áherslupenna. Glærurnar gera það að verkum að stafirnir virðast stækka, bilið milli þeirra breikkar og allt verður mun læsilegra.
- Einnig til litfilmur til að setja á gleraugu en þá er barnið alltaf með gul, græn eða öðruvísi lituð gler, ekki mjög "pent" og vekur meiri athygli. En í þessu sem öðru verður einstaklingurinn að prófa sig áfram.
- Námsgagnastofnun og Blindrabókasafn hafa gögn til að aðstoða dyslexíukrakka. (Fá beiðni hjá Jónasi G. Halldórssyni/Greiningarmiðstöð eða Blindrabókasafni.)
- Námsgagnastofnun gefur allt nýtt efni stofnunarinnar út á CD og verið að færa sumt af gamla efninu yfir á CD.
- rasmus.is - stærðfræði á miðstigi. Grunnskólarnir hafa aðgang að vefnum og eiga að vísa því áfram til dyslexíubarna.
- Lyklaborð. Börn sem eru mjög léleg í stafsetningu, skána oft við það að nota lyklaborð í stað skriftar.
- Ritþjálfi. Mjög góður og sérstaklega þar sem hann er notaður beintengdur við kennarann sem getur leiðrétt villur um leið og þær birtast. Barnið hefur þá aldrei villurnar/röngu orðin fyrir augunum og venst því að sjá alltaf rétt ritað mál.
- Lengri próftími.
- Krossaspurningar lesnar upp.
- Bækur scannaðar inn í tölvu sem les þær upp (ekki enn í boði hérlendis).
- Notkun tölva sem talað er við, einnig í prófum.
LESBLINDA og vinnuaðferðir Ron Davis
("Gift of Dyslexia") Sjá nánar á www.lesblind.com


