Algengar spurningar

10. Hvað er AD/HD og hvar er aðstoð að finna?

Glímir barnið eða unglingurinn við athyglisbrest og einbeitingarerfiðleika, hreyfióróleika, eirðarleysi, hvatvísi, of- eða vanvirkni, námserfiðleika, áráttuhegðun, hegðunar- og samskiptaerfiðleika?

Foreldrafélag barna
með AD/HD
www.adhd.is

Athyglisbrestur með ofvirkni - ADHD
Athyglisbrestur með ofvirkni, oft kallað ofvirkni í daglegu tali, er hegðunartruflun sem kemur yfirleitt snemma fram eða fyrir 7 ára aldur og getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun. Heilkennið er algerlega óháð greind. Erlenda greiningarheitið er ADHD (Attention Deficit Hyperactivity Disorder eða athyglisbrestur með/án ofvirkni).

Tíðni
Rannsóknir sýna að nálægt 5 af hundraði barna og unglinga glíma við ofvirkni sem þýðir að 1-2 börn með ofvirkni gætu í hverjum bekk að meðaltali í öllum aldurshópum. Auk þess geta börn haft vægari einkenni. Í hópi ofvirkra eru þrír drengir á móti hverri einni stúlku. Nýjar rannsóknir benda þó til að fleiri stúlkur séu ofvirkar en talið hefur verið en þær koma síður til greiningar.

Hvað veldur ofvirkni?
Orsakir ofvirkni eru líffræðilegar og því er ekki um að kenna umhverfisþáttum, t.d. slöku uppeldi eða óheppilegum kennsluaðferðum. Rannsóknir benda til að þeirra sé að leita í truflun í boðefnakerfi heila á stöðum sem gegna mikilvægu hlutverki í stjórn hegðunar. Erfðir gegna mikilvægu hlutverki því í fjölskyldum og ættum ofvirkra eru fleiri með þessi einkenni en almennt gerist. Ofvirkni getur einnig komið fram í tengslum við sjúkdóma eða slys, t.d. höfuðáverka eða áföll á meðgöngu, og hún fylgir oft öðrum þroskatruflunum.

Hvernig lýsa einkennin sér?
Þrír meginflokkar einkenna koma fram:

Athyglisbrestur kemur fram í því að barnið eða unglingurinn á erfitt með að einbeita sér að viðfangsefnum sínum, sérstaklega ef verkefnið krefst mikillar einbeitingar. Heimanám er þeim oft mjög erfitt.  Þau eiga erfitt með að koma sér að verki, eru auðtrufluð og oft hvarflar athyglin í miðju kafi að einhverju öðru og verkefnið gleymist. Athyglisbresti fylgir yfirleitt gleymska og hlustunin er ekki góð. Skipulagserfiðleikar er nær alltaf fylgifiskar athyglisbrests og oft er tímaskyni áfátt. Þó er athyglisbresturinn ekki alltaf til staðar og ef verkefnið er nógu spennandi og tilbreytingaríkt, t.d. tölvuleikir, getur komið fram nánast ofureinbeiting þannig að barnið dettur hreinlega úr sambandi við umhverfi sitt. Athyglisbrestur getur haft margvíslegar afleiðingar á námshæfni en hann kemur oft ekki í ljós fyrr en barnið byrjar í skóla og meira fer að reyna á athyglina

Hreyfióróleiki lýsir sér þannig að börnin eiga erfitt með að sitja kyrr. Þau iða í sæti og eru fiktin og stöðugt á ferð og flugi. Þau tala oft mikið og liggur oft hátt rómur. Hreyfióróleiki er oft mest áberandi á yngri árum.

Hvatvísi kemur þannig fram að börn eiga erfitt með að bíða, þau grípa fram í og ryðjast inn í leiki og samræður annarra. Þeim er hætt við að framkvæma og gera hluti án þess að hugsa um afleiðingar gerða sinna en það kemur þeim bæði í vandræði og hættu.

Mikilvægt er að hafa í huga að einkennin geta verið mismunandi og mismikil hjá ólíkum  einstaklingum og eru breytileg eftir aldri. Hreyfióróleikinn er mest áberandi á yngri árum. Oft dregur úr einkennum hans á unglingsárunum en  í staðinn kemur innri órói.

Athyglisbrestur án ofvirkni (ADD). Sum börn og unglingar eru með mikinn athyglisbrest en óveruleg einkenni hreyfióróleika og hvatvísi. Í þeim tilvikum er um að ræða athyglisbrest án ofvirkni. Þau eru oft mjög hæg og róleg og því er oft talað um vanvirkni hjá þeim. Gera má ráð fyrir að þessi börn og unglingar komi síður til greiningar en börn með mikinn hreyfióróleika sem eru hvatvís. Athyglisbrestur án ofvirkni getur þó haft alvarlegar afleiðingar á námshæfni og ákveðin gerð minnistruflana hrjáir þessa einstaklinga ásamt kvíða og depurð. Tíðni sértækra námserfiðleika á borð við lestrar- og málerfiðleika er há.

Fylgiraskanir
Börn og unglingar með athyglisbrest með/án ofvirkni eiga einnig oft við aðra erfiðleika að stríða. Ákveðinn hópur er t.d. með sértæka námsörðugleika og alvarlegir félags- og hegðunarerfiðleikar eru ekki óalgengir. Þeim er mjög hætt við að þróa með sér mótþróahegðun. Kvíði og depurð eru algeng og mörg þessara barna sýna einkenni áráttuhegðunar. Dæmi um þá hegðun er ofurást á t.d. tölvuleikjum sem mestöllum  frítíma er varið í og viðkomandi sýnir óþol og skapofsa ef hann kemst ekki strax í tölvuna sína. Í þessu tilviki tengist hegðunin hömluleysi og hvatvísi. Félagsleg samskipti ganga oft illa, bæði gagnvart jafnöldrum og fullorðnum. Hætta er á félagslegri einangrun sem stuðlar að slakri sjálfmynd og vanlíðan. Því er mikilvægt að þjálfa félagsfærni og aðstoða þessi börn og unglinga í samskiptum við aðra.

Ofvirkni og nám
Þótt ekki sé um beina sértæka námsörðugleika að ræða má rekja ýmis konar námserfiðleika barna og unglinga með athyglisbrest með/án ofvirkni beint til veikleika þeirra. Þótt þau eigi ekki í beinum lestrarörðugleikum ná þau oft illa innihaldi textans og fylgjast illa með, hugurinn hvarflar frá lestrinum og minnistækni er slök. Skipulögð frásögn bæði í máli og riti er þeim oft erfið og mörg glíma við skriftarerfiðleika. Þótt börnin hafi oft ágætis stærðfræðiskilning veldur ónákvæmni þeirra skekkjum og þeim gengur illa að beita reikningsaðgerðum og höndla óhlutbundin stærðfræðihugtök. Ómeðhöndluð ofvirkni hindrar þessa einstaklinga í að nýta sér greind sína. 

Horfur
Áður fyrr var talið að ofvirkni hyrfi með aldrinum en rannsóknir hafa sýnt að svo er ekki. Nýjar erlendar fylgikannanir sýna að 50-70% þeirra sem greinast með ofvirkni í bernsku eru enn með einkenni á fullorðinsárum. Hvernig þeim vegnar á fullorðinsárunum er mjög háð viðeigandi meðferð á yngri árum og hversu snemma hún fékkst. Þættir eins og greind, alvarleiki einkenna og félagsleg staða skipta einnig máli. Viss hætta er á að hluti hópsins leiðist út í andfélagslega hegðun og vímuefnaneyslu á unglingsárum fáist ekki rétt meðferð.

Meðferð
Ofvirkni er ekki sjúkdómur og því er útilokað að lækna hana. Sem betur fer eru þó vel þekktar leiðir til að draga úr einkennum hennar og halda þeim í skefjum þannig að þau valdi ekki alvarlegri félagslegri og hugrænni röskun. Meðferð þarf að byggjast á læknisfræðilegri, sálfræðilegri og uppeldis- og kennslufræðilegri íhlutun ásamt hegðunarmótandi aðferðum.

Meðferðin byggist á:

  • þjálfun í heppilegum uppeldisaðferðum 
  • lyfjameðferð
  • viðeigandi kennsluaðferðum
  • fræðslu um ofvirkni

Bestur árangur næst með samþættri meðferð sem þarf að hefjast sem fyrst.

Uppeldi ofvirkra barna og unglinga
Uppeldi ofvirkra barna og unglinga er oft krefjandi og reynir því töluvert á bæði foreldra og aðra, t.d. kennara.  Góð sjálfsímynd er forsenda velgengni og því er lykilatriði að stuðla að því að ofvirkir bíði ekki stöðuga ósigra í daglegu lífi. Börn og unglingar læra ekki af skömmum og neikvæðu viðmóti. Þetta brýtur niður sjálfsmyndina og eykur hættu á kvíða og depurð. Mikilvægt er að leita eftir sterkum hliðum en ekki að einblína á veikleika. Ofvirk börn og unglingar þurfa skýra ramma í uppeldinu, fáar en einfaldar reglur og ótvíræð og einföld fyrirmæli sem fylgt er eftir. Fyrst og fremst þarf þó jákvætt viðmót, hrós og viðurkenningu fyrir það sem vel er gert.
Skilningur á eðli ofvirkni og samvinna þeirra sem umgangast barnið eða unglinginn, hvort sem það er heima eða utan heimilis, í skóla eða leikskóla eða í tómstundastarfi, er forsenda þess að hægt sé að takast á við vandann og skapa þeim og fjölskyldum þeirra gott líf. 

Hvert er hægt að leita?

  • Heimilislæknir eða heilsugæslustöð er oft fyrsta skrefið. Þar er ákvörðun tekin í samráði við foreldra um hvort ástæða sé til að vísa áfram til sérfræðinga til nánari athugunar. Það geta verið barnalæknar eða barna- og unglingageðlæknar, sálfræðingar eða aðrir sérfræðingar með sérþekkingu á þessu sviði.
  • Sérfræðiþjónusta leikskóla eða sálfræði- og sérfræðiþjónusta grunnskóla.
  • Miðstöð heilsuverndar barna við Barónsstíg.  Þar er starfrækt sérstakt greiningarteymi fyrir börn 0-6 ára, sem hefur sérstaka þekkingu og reynslu af vinnu með börnum og greiningu á þroskafrávikum. Tilvísunar er þörf.
    Sími 585 13 50, veffang www.hr.is
  • Fjölskyldumiðstöðin á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, þar er bæði ráðgjöf og hópstarf fyrir fjölskyldur í vanda.
    Sími 511 15 99, veffang www.barnivanda.is
  • Félagsþjónusta sveitarfélaga getur veitt börnum og fjölskyldum þeirra félagslega aðstoð s.s. persónulegan ráðgjafa og stuðningsfjölskyldu.
  • Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Tilvísunar er þörf.
    Sími 554 43 00, veffang www.landsspitali.is
  • Eirð sf. Fræðslu-og ráðgjafaþjónusta um uppeldi og geðheilsu barna og unglinga.  Þar starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga sem kemur að greiningu og veitir ráðgjöf vegna AD/HD. Eirð er með fræðslu fyrir foreldra og fagfólk auk sérhæfðra námskeiða fyrir foreldra ofvirkra barna. Eirð er að Suðurlandsbraut 6, 105 Reykjavík. Sími 553 99 66, netfang eird@isl.is
  • Ennfremur er hægt að leita til annarra sjálfstætt starfandi fagaðila s.s. félagsráðgjafa, geðhjúkrunarfræðinga, listmeðferðarfræðinga, sérkennara, iðjuþjálfa og heyrnar- og talmeinafræðinga.

Hlutverk foreldrafélagsins
Helsta hlutverk Foreldrafélags barna með AD/HD er:

  • að fræða foreldra
  • að styðja við fjölskyldur
  • að miðla upplýsingum til foreldra og fagfólks
  • að efla innbyrðis tengsl foreldra sem búa við svipaðar aðstæður

Félagið hefur gefið út margþætt fræðsluefni. Þar má m.a. nefna

  • á sjöunda tug fréttabréfa síðan 1988
  • fræðslubæklinga um AD/HD
  • rit um AD/HD fyrir kennara
  • rit um AD/HD fyrir fjölskyldur
  • rit um AD/HD fyrir barnið/unglinginn

Auk þess er bent á eftirfarandi efni:

  • Þroski og hegðunarvandi eftir Málfríði Lorange og Matthías Kristiansen (1998/2002)
  • Náms- og hreyfiþjálfun  eftir Guðrúnu S. Þórarinsdóttur og Kristínu B. Jóhannsdóttur (2001)
  • Ofvirknibókin eftir Rögnu Freyju Karlsdóttur (2001)
  • Skrefi á undan, ritstjóri Elín E. Jóhannsdóttir (2001)
  • Tígurinn taminn, gefin út af Tourette-félaginu (2002)
  • safn bóka og myndbanda á íslensku, ensku og Norðurlandamálum í bókasafni Foreldrafélagsins
  • Ítarlegt úrklippusafn á skrifstofu

Nánari upplýsingar um starfsemi Foreldrafélagsins eru á heimasíðunni www.adhd.is

Sjónarhóll er þjónustumiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þegar þessi bæklingur fer í prentun er hún í undirbúningi en nánari upplýsingar um starfsemina verður að finna á áðurnefndri heimasíðu félagsins.

Upplýsinga- og fræðsluþjónusta Foreldrafélags barna með AD/HD er opin alla virka daga kl. 13 - 15 nema yfir hásumarið. Öllum er velkomið að leita eftir ráðum og upplýsingum til okkar á Laugavegi 178, 105 Reykjavík, síminn er 581 11 10.

Félagar í Foreldrafélagi barna með AD/HD fá:

  • Sent fréttabréf félagsins
  • Aðgang að fræðsluefni um AD/HD
  • Upplýsingar um fræðslunámskeið um AD/HD í samvinnu við Eirð
  • Upplýsingar um stuðningstilboð fyrir foreldra, börn og unglinga
  • Upplýsingar um íþróttastarfsemi á vegum Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík fyrir börn með AD/HD
  • Upplýsingar um önnur tilboð og þjónustu sem er í boði á hverjum tíma

Árgjald er nú kr. 2000.

Foreldrafélag barna með AD/HD
(áður Foreldrafélag misþroska barna)
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
Pósthólf 5475, 125 Reykjavík
Sími 581 11 10, bréfasími 581 11 11
Netfang: skrifstofa@adhd.is
Veffang : www.adhd.is


Til baka