Gátlisti fyrir foreldraráð

  • Skoða fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og bera saman framlög til skólamála miðað við aðra málaflokka og miðað við framlög annarra sveitarfélaga að svipaðri stærð. Bera einnig saman framlög til skóla innan sveitarfélagsins

  • Lesa grunnskólalög, reglugerðir og reglur um skólahald frá menntamálaráuneytinu og bera saman við áætlanir sveitarfélags

  • Lesa skólanámskrá og bera saman við aðalnámskrá  og grunnskólalög.  Skila umsögn um skólanámskrá til skólastjóra og skólanefndar

  • Fara yfir skóladagatal, aðgæta hvort skóladagatal er samræmt milli allra leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu. Senda umsögn um skóladagatal til skólastjóra og skólanefndar

  • Fara yfir stundaskrár (tímamagn sbr. Aðalnámskrá) og aðrar áætlanir skólans

  • Skoða niðurstöður kannana og samræmdra prófa og fá skýringar hjá skólastjóra

  • Skoða skólahúsnæði, tækjakost skólans, bókasafn og annan búnað sem og almennan aðbúnað nemenda

  • Skoða mötuneyti og matseðla, fá upplýsingar um hve margir kaupa mat og hvetja til þess að viðhorf nemenda og foreldra til matarmála sé kannað reglulega

  • Skoða húsnæði og dagskrá heildagsskólans, fá upplýsingar um starfmannahald heildagsksólans sem og nýtingu og ánægju með þjónustuna.

  • Skoða íþróttaaðstöðu. Kanna hvernig gæslu í sturtum er háttað í leikfimi og sundi

  • Spyrja út í starfsmannastefnu, starfsmannahald og endurmenntunaráætlun skólans

  • Spyrja út í eineltisstefnu, áfallaáætlun og forvarnir

  • Fara yfir stöðu valgreina í unglingadeild og framboð á félagsstarfi fyrir alla nemendur

  • Fá upplýsingar um sjálfsmatsáætlun skólans, fylgjast með framgangi hennar sem og niðurstöðum kannanna sem gerðar eru í tengslum við sjálfsmat

  • Kynna sér stefnu skólans um samstarf heimila og skóla sem og upplýsingagjöf til foreldra
  • Heimsækja skólann á skólatíma
  • Tala við og hlusta eftir röddum foreldra, nemenda, kennara og annarra starfsmanna

  • Kynna sér skólaakstur t.d. með því að fara í skólabílnum. Skoða ferðir til og frá sundi, athuga hver fylgir börnunum sem og hver annast sturtugæslu

  • Koma með tillögur til úrbóta um það sem betur má fara ef þörf krefur