Foreldrafélög

Skólafærninámskeið

Þegar nýr einstaklingur hefur skólagöngu, venjulega við 6 ára aldur, hefst 10 ára samstarf milli foreldra hans og þess skóla sem hann gengur í.

Margir hafa áhyggjur af vandamálum sem virðast fara vaxandi hjá ungum nemendum við upphaf skólagöngu, þá sérstaklega hegðunar-, náms- og félagslegum vandamálum. Talið er að þessi vandamál sé hægt að leysa með góðri samvinnu foreldra og starfsfólks skóla. Ein þeirra leiða sem hefur verið farin til að byggja upp slíka samvinnu og ná til aðila sem að skólasamfélaginu koma, er svokallað skólafærninámskeið. 

Meginhlutverk skólafærninámskeiðs er að fá foreldra til að koma á vinnustað barna sinna og kynnast því fólki sem þar starfar, skoða húsakynni, bóka og tækjakost og síðast en ekki síst til að kynnast foreldrum skólasystkyna barna sinna.

Með skólafærninámskeiði gefst skólanum tækifæri til að bjóða foreldra velkomna og leggja þannig grunn að 10 ára góðri samvinnu, byggðri á gagnkvæmu trausti, þekkingu og skilningi á hlutverki allra þátttakenda skólasamfélagsins.

 Helstu markmið skólafærninámskeiðs er:

  •  að skapa vettvang fyrir foreldra til að kynnast starfsfólki skólans og að kynnast innbyrðis

  •  að kynna foreldrum þær væntingar sem starfsfólk skólans hefur til þeirra og hvaða hlutverk foreldrum er ætlað af hálfu skólans

  •  að gera foreldra meðvitaða um hag og þörf barna fyrir samvinnu heimila og skóla og þörf þeirra fyrir áhuga foreldra á skólastarfinu

  •  vekja vitund foreldra á þeirri ábyrgð sem þeir bera á eftirliti með framkvæmd skólanámskrár

  •  að gera foreldra meðvitaða um þau áhrif sem foreldrar geta haft á skólastarfið með starfsemi í foreldraráði, foreldrafélagi og sem bekkjarfulltrúar

  •  að kynna starfsfólki skólans væntingar foreldra og þær kröfur sem foreldrar gera til þess

  •  að ná til allra foreldra, líka þeirra sem telja sig ekki þurfa að mæta af því að þeirra barn á ekki við neinn vanda að stríða!

Hvert námskeið samanstendur af þremur fundum og er því alls u.þ.b. 12 klst. að lengd. Valdir eru mismunandi vikudagar fyrir fundina þar sem sumir foreldrar eru alltaf uppteknir á ákv. dögum og komast því ekki þá daga. Þeir foreldrar þurfa þá ekki að missa af öllu námskeiðinu því þeir geta nýtt sér hin tvö skiptin. Á dagskrá námskeiðsins  er meðal annars sameiginlegt borðhald þar sem foreldrum gefst tækifæri til að kynnast og spjalla saman, kynningar, fyrirlestrar, leikir o.fl. Í lok hvers námskeiðs er lagður spurningalisti fyrir þátttakendur þar sem þeir eru beðnir að segja álit sitt á innihaldi og framkvæmd námskeiðsins. Þannig er hægt að þróa skólafærninámskeiðið í hverjum skóla með aðstoða þátttakenda.

Allir foreldrar 6 ára barna fá upplýsingar um námskeiðið þegar börnin eru skráð í skólann. Í júlí fá foreldrar bréf með upplýsingum um námskeiðið, markmið þess og hvenær að haustinu það verður haldið ( helst í byrjun september). Í ágúst þegar dagskrá námskeiðsins er tilbúin, heimsækja fulltrúar foreldrafélagsins foreldra barna sem eiga að byrja í 1. bekk og spjalla við þá. Í þær heimsóknir er tilvalið fyrir fulltrúa foreldrafélagsins að hafa meðferðis bækling frá Heimili og skóla “Hollráð frá foreldrum til foreldra” sem er hluti af verkefni Foreldrasamnings yngri barna. Í heimsóknunum er hugmyndin á bak við námskeiðið skýrð nánar og lögð rík áhersla á að foreldrar mæti, helst báðir. Einnig er bent á þann möguleika að taka með sér náinn aðstandanda, ömmu, afa eða systkyni. Einstæðir foreldrar hafa oft nýtt sér þann kost að taka aðstandanda með og einnig ef foreldri forfallast. Einstæðir foreldrar ættu einnig að íhuga að bjóða forsjárlausa foreldrinu að mæta ef það hefur reglulegt samband við barnið. Í þessari sömu heimsókn skrá fulltrúar foreldrafélagsins þá foreldra sem mæta.

Reynslan hefur sýnt að þar sem vel hefur verið staðið að skólafærninámskeiðum, hafa samskipti foreldra við skólann verið jákvæðari og  samvinna heimilinna hefur skilað sér inn í kennslustofur í bættum aga, minnkuðu einelti og betri námsárangri. Foreldrar sem hafa tekið þátt í skólafærninámskeiðum eru jafnan jákvæðari í garð skólans og taka frekar þátt í þeirri starfsemi sem skólinn býður upp á svo sem starfi í foreldrafélagi og foreldraráði.

Tillaga að dagskrá
Námskeiðið hefst og lýkur alla daga á sal. 

? september, t.d. fimmtudagur:
Dagskrárstjórn: Foreldri sem treystir sér til.

18.00       Námskeiðssetning. Fulltrúi skóla, t.d. skólastjórnendur eða deildarstjóri. 
               
Ýmis hagnýt atriði. Það sem þarf að hafa í huga við upphaf grunnskólagöngu.

18.20       Fyrirlestur t.d. sálfræðings, uppeldisfræðings eða félagsfræðings. Fyrirspurnir og umræður.  Dæmi um viðfangsefni gæti m.a. verið: “Þroski barna við upphaf skólagöngu”

19.20           Sameiginlegur málsverður

19.50       Nemandinn í skólanum – kynning á námsefni vetrarins og bekkjarstarfinu, kynning á gátlista í umsjón bekkjarkennara (hér er gott að geta nafna kennara og umsjónarbekk, einnig í hvaða stofu þeir kenna)

21.00       Hlé, kaffi og fleira á sal.

21.20           Völundarhúsið leiðsögn eldri nemenda um skólann.
 Komið saman á sal.

?. september, t.d. þriðjudagur:
Dagskrárstjórn; Fulltrúi skóla, t.d. skólastjórnendur eða deildarstjóri

18:00       Fyrirlestur t.d. sálfræðings, uppeldisfræðings eða félagsfræðings. Fyrirspurnir og umræður.  Dæmi um viðfangsefni gæti m.a. verið: “Þroska- og hegðunarfrávik – samskipti”

19.15           Sameiginlegur málsverður á kennarastofu.

19.45           Kynning á starfsemi skólans og starfsmönnum, umsjón t.d. skólastjóri; sérgreinakennsla, heilsugæsla, námsráðgjöf, sérkennsla, dagdeild, skrifstofa o.fl. kynnt.

21:00       Hlé, kaffi og fleira á sal.

21.20           Gátlistinn, yfirferð og skipst á skoðunum, Foreldri sem treystir sér til og / eða fulltrúi skólastjórnenda

?. september, t.d. laugardagur:
Dagskrárstjórn; t.d. formaður foreldrafélagsins.

10:00       Leikir og þrautir. Umsjón bekkjarkennarar (hér er gott að geta þess í hvaða stofu hver bekkur á að vera).

10.40           Ratleikur. Umsjón t.d. leikfimiskennari og að ratleik loknum fara foreldrar á sal skólans en börnin verða áfram í umsjón leikfimiskennara til klukkan 12.00.

11.20           Hlutverk foreldra, Fulltrúi foreldra sem treystir sér til

12.00       Sameiginlegur málsverður á sal

12.30           Mat á námskeiðinu,
Afhending viðurkenningarskjala og námskeiðsslit.

Til baka