Foreldrafélög
Leikskólar
Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi og velferð barna sinna en leikskólanum ber að veita foreldrum stuðning í uppeldi barna. Mikilvægt er að náið samstarf og gagnkvæmt traust skapist milli heimilis og leikskóla. Foreldrar þekkja barn sitt best, þeir hafa þekkt það frá fæðingu og fylgst með þroskaferli þess og líðan. Leikskólakennari kynnist barni í leikskólastarfi og þekkir þroska þess, færni og viðbrögð í barnahópi.
Leikskólastjóra ber skylda til, samkvæmt lögum um leikskóla og reglugerð um starfsemi leikskóla, að stuðla að samstarfi heimila og leikskóla.
Markmiðið með foreldrasamstarfi er að:
- veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans
- veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í leikskólanum
- afla upplýsinga um aðstæður og uppeldisviðhorf foreldra
- stuðla að þátttöku foreldra í starfi leikskólans
- rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna
- skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna
Dagleg samskipti
Foreldrar þurfa að fylgjast með því sem helst hefur drifið á daga barns í leikskóla og leikskólakennari þarf að vita um helstu atburði í lífi barnsins utan leikskólans, t.d. ferðalög, leikhúsferðir og afmæli, sem gaman er fyrir barnið að segja frá. Mikilvægt er að foreldrar láti leikskólakennara barns vita ef breytingar verða á högum þess og fjölskyldulífi. Börn eru næm á allar breytingar og geta þær haft áhrif á líðan þeirra og hegðun.
Sjá einnig Aðalnámskrá leikskóla 1999
19.gr.
Frumkvæði að stofnun foreldrafélags við leikskóla getur hvort sem er komið frá foreldrum, leikskólastjóra eða öðrum starfsmönnum leikskóla eða frá leikskólanefnd. Í öllum tilvikum skal leikskólastjóri aðstoða við stofnun félags. Foreldrafélag hvers leikskóla setur sér starfsreglur.
Sjá vefsíðu Samtaka foreldrafélaga leikskóla


